Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Greinar

„FINNDU ÞINN INNRI SPAÐA“, SÝNING THELMU BJARKAR heldur áfram

Thelma Björk sem er menntaður fatahönnuður, textíl-, jóga og hugleiðslukennari, er í sífelldri leit í sinni listsköpun og vinnur út frá hugmyndum sínum um tengslin milli hugar og handa og hvernig hún getur skapað listaverk byggð á minningum.

Laugardaginn 4. desember opnaði frábærlega forvitnileg sýning á útsaumuðum “tennis” spöðum en kveikjan af þessum óvenjulegu verkum er handverk sem móðir hennar gerði undir handleiðslu móður sinnar (ömmu Thelmu) þegar hún var ung táta.

Sýningin hefur fengið heitið „Finndu þinn innri spaða“.

Thelma sér gersemarnar víða og kann svo sannarlega að gefa gömlum hlutum, sem aðrir sjá sem rusl, nýtt og spennandi líf.

Thelma Björk vinnur verk sín út frá flæði og skynjun í gegnum handverk og hugleiðslu sem hún lýsir svo fallega sjálf: “Mig langar að draga fram í dagsljósið hversu rík handverkshefðin okkar er og hvernig hún er að mörgu leyti núvitund 21. aldarinnar. “ Og Thelma bætir við: “Útsaumur er seinlegt starf og kallar á útsjónasemi og nákvæmni. Verðlaunin eru síðan hugarró og valdefling.”

Margir þekkja vitaskuld Thelmu Björk sem hefur haldið úti vikulegri afar vinsælli hugleiðslu Systrasamlaginu undanfarin ár. Nú fáum við að njóta handverks hennar í sama rými

Verkin eru bæði til sýnis og sölu.

Sýning Thelmu sem hefur verið  framlengd og stendur í það minnsta út janúar.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing