Samkvæmt kínversku alþýðulæknisfræðinni er tími lifrarinnar, þessa stærsta kirtils líkamans, að runnin upp. Þá finna margir fyrir þrekleysi eftir langan, dimman og kaldan vetur sem tengt er minnkaðri „qi“ orku, eða sjálfri lífsorkunni. Til að byggja upp qi á ný og enduvekja líkamann eru mörg góð ráð fólgin í heilsusamlegri fæðu og frábærum jurtum. Ayurveda fræðin taka undir og ráðleggja jafnframt að aðalhreinsun ársins fari fram með hækkandi sól. Sé það gert vel geti aðrar hreinsanir jafnvel verið ónauðsynlegar, eða í besta falli staðið stutt yfir á öðrum tímum ársins. Ef hins vegar lifrin og líkaminn eru ekki heinsuð á þessum árstíma sé fólk gjarnan að glíma við hökt allt árið. Það gerist ekki sé farið í góða vorhreinsun.
Lifrin sér um að qi orkan renni ljúflega í gegnum líkamann en sérhver truflun á því flæði bitnar ekki bara á lifrinni heldur líka öðrum hreinsunarlíffærum. Stöðnun á flæði qi/lífsorkunnar truflar m.a. flæði tilfinninganna og kallar fram pirring og jafnvel reiði. Og öfugt; reiði og pirringur geta stoppað flæði qi/lífsorkunnar með ýmsum afleiðingum.
Eins og flestir vita gegnir lifrin fjölmörgum hlutverkum og er aðal efnaskiptalíffæri líkamans. Hún er tengd endurnýjun og búskap blóðsins og sér um að halda því hreinu og kraftmiklu, ef allt er á kosið. Lifrin er t.d. frumlíffærið í tengslum við tíðarhring kvenna.
Það sem kínverska læknisfræðin leggur einnig ríka áherslu á er að þegar lifrin er í ójafnvægi geti hún valdið óþægilegum tilfinningalegum sveiflum, eymslum í rifjum, stöðuguri seddutilfinningu, svima, höfuðverk, stífni í sinum, tíðarvandamálum, þokutilfinningu, meltingartrufununum og jafnvel gulu.
HIN KVENLEGA HRINGRÁS Eitt af hlutverkum lifrarinnar er að halda uppi blóðvarasjóði til frekari nota. Þessi hluti hringrásarinnar á að sjá um að næra viðkvæma og auma vöðva eftir líkamleg/andleg átök og íþróttaiðkun, auk þess að vera í nánum tengslum við tíðarhring kvenna, eins og áður var nefnt. Lifrin sér til þess að nægar blóðbirgðir séu til sem hafa með reglu og þægindi blæðinga að gera. Óþægindi eða truflum á tíðarhringnum er í langflestum tilfellum meðhöndluð, samkvæmt kínversku læknisfræðinni, með því að koma reglu blóðflæði í lifur; á qi og yin.
Þegar lifrar qi/lífsorkan staðnar (sem er mjög algengt ástand á vesturlöndum, sérstaklega á þessum árstíma), upplifir fólk (og það á bæði við um karla og konur), pirring og stífleika, sérstaklega stífan og þungan brjóstkassa, og konur gjarnan fyrirtíðarspennu. Þegar lifrarblóð er lítið kemur það einnig fram í þurrum augum og húð, fölva og að blæðingar kvenna geta farið úr skorðum.
AUGUN ERU SPEGILL LIFRARINNAR Hitt er að qi/lífsorkan getur ýmist staðnað eða verið of mikil. Ef hún er of sterk er líklegt að hún hafi slæm áhrif á önnur líffæri og geti jafnvel valdið valdið tjóni á og lungum, maga og milta. T.d. er ekki óalgengt að sjúkdómar eins og „Irritable Bowel Syndrome“ og meltingatruflanir megi meðhöndla með því að tempra qi/lífsorkuna. Lifrin stjórnar jafnframt sinunum, og eins og áður sagði flytur lifrin aukablóð til vöðva. Þegar skortur er á geymslublóði frá lifur finnum við fyrir stíf- og stirðleika og viðkvæmni í líkamanum. Eitt dæmi sem sýnir okkur að lélegt qi /lífsorkuflæði sé í líkamanum er ef drykkja á of mikið af sterku kaffi framkallar krampa einhversstaðar líkamanum. Þannig er gott að fara varlega í kaffi, eða drekka fremur kaffi með gheei, meðan maður nær aftur í qi/lífsorkuna.
Stöðnuð qi/lífsorka getur líka birst í því að neglur verði fölar og stökkar og húðin þurr. Og þar sem augun eru spegill lifrarinnar (og þar með lífsorkunnar) er mjög algengt að þegar fólk hefur hreinsað lifrina verði augun aftur rök, tær, djúp og glansandi.
HÉR ERU NOKKRAR FRÁBÆRAR JURTIR SEM GETA HREINSAÐ LIF
RINA:
1) Mjólkurþistilinn ber höfuð og herðar yfir aðrar lifrajurtir. Hann bæði hreinsar og verndar og er besta fáanlega næringin fyrir lifrina. Mjólkurþistillinn á sér langa hefð sem lækningajurt. Það var samt ekki fyrr en á 8. áratugnum sem vísindamenn fóru að rannsaka jurtina að gagni en mjólkurþistill er ein af fáum jurtum sem á sér ekkert jafngildi úr heimi hefðbundinna lyfja. Virku efnin í mjólkurþistli eru 4 og þekkt undir samheitinu silymarin og virka einnig á fjóra mismunandi vegu. Þau eru andoxandi, gera frumuhimnu og gegndræpi lifrarfruma stöðugri, hraða nýmyndun lifrarfruma og hægja á myndun kollagenþráða sem myndast við skorpulifur.
Í Systrasamlaginu fæst öflugur lífrænn mjólkuþistill. Ef fólk vill fara í djúpa og öfluga hreinsun er jafnvel mælt með 4 til 5 hylkjum 4 til 5 sinnum dag. Mildari hreinsun gæti verið 2 hylki 2 x á dag en almennt er gott að taka mjólkurþistill 1 x á dag flesta daga ársins með smá hléum.
2) Túnfífill er öflug jurt án aukaverkanna, sem er gott að taka inn með mjólkuþistli. Auk þess að vera frábær uppspretta margra mikilvægra vítamína og steinefna, eins og járns, fosfórs og sinks, er hann hvað mest dáður vegna þess að hann ýtir við gallvökvanum og styrkir þannig samband lifrar og gallblöðru, sem er gott fyrir heilsufar okkar í heild. Þekkt er að túnfífill hreinsar einnig hormóna sem setjast að í lifur og er að auki mjög vatnslosandi.
3) Króklappa/rót: Í Auyrvedískum fræðum er talað um króklöppu sem drottingu allra blóðhreinsandi jurta. Hún ýtir einnig við gallvökvanum og er sögð endurnýja skemmdar frumur. Hún er líka bólgueyðandi og beisk og þann bragðþátt vantar mjög uppá á Vesturlöndum fyrir jafnvægi líkamans.
Frá Viridian
fæst góð blanda af túnfífli og króklöppu í 350 mg hylkjum, án allra aukaefna og nastí (enda má það ekki minna vera ef fólk er að fara í hreinsun). Mælt er með 1 til 3 hylkjum á dag en gott er að byrja á 1 hylki en færa sig svo smám saman upp í 3 til þess að hreinsa bæði á breiddina og dýptina. Getur verið frábær hluti af hreingerningunni.
4) Túrmerik (kúrkúmin) –Þar sem það er marg vísindalega sannað að túrmerik er afar bólgueyðandi, er viturlegt að taka hana með í reikninginn. Því staðreyndin er sú að lifrarvandamál eru uppspretta flestra bólgusjúkdóma. Til að tryggja góða upptöku túrmeriks mælum við systur með að neytt sé piperine með túrmerikrótinni. Það efni er aðaluppistaðan í svörtum pipar. Rannsóknir hafa sýnt að svartur pipar auki upptöku næringarefna. Í Systrasamlaginu fæst afar vinsælt curcumin í hylkjum frá Viridian sem inniheldur 350 mg af túrmerki, 100 gr af Boswellin (Boswella serrata) sem er hin magnaða Frankinsence olía, 100 mg. engifer þykkni sem er sambærilegt við 500 mg af ferskum engifer og 100 mg af sítrusblöndu sem er afar rík af bíóflavóníðóðum.
6) Þá mælum við með góðri blöndu með meltingarensímim. Digestive Aid bland
an frá Viridian hefur að geyma meltingarensímin lípasa, prótasa og amílasa ásamt Betanine hydroklóríð (HCL), sem eykur sýrustig í maga fyrir betri meltingu, piparmyntu, sem er verk og vindeyðandi og engifer, sem margsannað er að gagnast vel við meltingartruflunum.
7) Be
tanine hydroklóríð (HCL). Ekkert er mikilvægara meltingu mannsins en maginn. Það er augljóst en vill stundum gleymast. Maginn framleiðir hydroklóríð sýru eða magasýrur og ensím til að tryggja fullnægjandi niðurbrot og frásog næringar úr matnum. Há sýra (sem merkir lágt PH) í maga hefur líka reynst vel til að koma í veg fyrir sýkingar af völdum örvera, sem geta ferðast í gegnum meltinguna með mat og lofti. Svo er annað: magasýrur melta prótein og draga úr hættu á því að matur valdi okkur ofnæmum og allskyns óþoli.
Einkenni tengd skorti á magasýrum (kallað hypochlorhydria):
Allskyns óþægindi í maga eftir mat.
Niðurgangur eða hægðartregða
Vindgangur
Hárlos, sérstaklega hjá konum
Meltingartruflanir
Slen
Margskonar fæðuofnæmi
Ógleði
Óþægileg seddutilfinning
Sárindi, brunatilfinning og þurrkur í munni.
8) SYKURHREINSUNARBLANDAN frá Virdian er góður inngangur inn í vorhreinsunin og hjálpar sannarlega þeim sem vilja byrja á því að draga úr sykuráti. Þið getið lesið allt um það hér: SYKURHREINSUN SEM VIRKAR.
9 og 10) Notaðu tungusköfu meðan á hreinsuninni stendur eða raunar alltaf og nuddaðu líkamann upp úr heitri olíu. Það hjálpar sannarlega til. Sjá grein um SJÁLFSNUDD OG HEILUN.
…og svo er það fæðan:
Margar fæðutegundir eru þekktar fyrir að ýta undir hreinsun lifrar og gallblöðru. Það besta sem þú gætir gert fyrir lifrina er að borða þrjá til sex skammta af eftirfarandi fæðu daglega. Og við tökum það fram að fæðan þarf allra helst vera lífrænt ræktuð, því lífrænt ræktað ber í sér nánast engin eitur- eða aukaefni sem setjast að í lifrinni, samanborið við það sem ekki er lífrænt ræktað.
Hér eru allmargar fæðutegundirnar sem næra lifur: Alfa alfa spírur – Epli – Kínóa- Ætisþistilar- Aspas- Rauðrófur- Ber- Brokkkál- Spíruð brokkálsfræ Rósakál – Kál – Hvítkál – Sellerí – Kirsuber – Kafffífill – Kanill – Túnfífill – Fennel – Höfræ (möluð) – Hvítlaukur* Engifer- Lecithin – Blaðlaukur * – Laukur * – Steinselja – Radísur – Sesamfræ – Spínat – Túrmerik* – Valhnetur Vatnakarsi *Forðist ef þið eruð viðkvæm í maga eða eigið sögu um miklar magasýrumyndun. Gott að vita… Það getur tekið frá sex vikum til allt að þremur mánuðum að hreinsa lifrina og gallblöðruna með góðum jurtum en gott er að byrja að hreinsa til mataræðið fyrst í 9 daga. Eftir þann tíma getur þú minnkað hina lifrarhreinsandi matarskammta og dregið rólega úr inntöku lifrarhreinsandi og –styrkjandi bætiefna. Engu að síður er gott að viðhalda hreinni lifur og það fæst best gert með því að huga sem oftast að því að hafa lifrarhreinsandi fæðu á hinum daglega matseðli. ….og svona til fróðleiks Öll mikilvægu yin-líffærin fimm eru sögð hafa mikil andleg áhrif á manninn. Þannig geymir hjartað gleðina, nýrun vilja mannsins, lungun sorg, miltað getu mannsins til að hugsa skýrt og læra og lifrin sem fyrr segir reiðina og qi/lífsorkuna. Allar þessar tilfinningar eru eðlilegar og bera vott um heilbrigði en ef ójafnvægi kemst á þær geta þær valdið sjúkdómum eða ójafnvægi í viðkomandi líffærum. Yang-líffærin (karlorkulíffærin) eru hins vegar gallblaðran (bile þýðir t.d. geðvonska) smáþarmarnir, maginn, ristillinn og þvagblaðran. …til gamans með fullri alvöru: Gamalt máltæki segir að þegar lifrin er hrein blómstri kynhvötina PS: Gott er að ráðfæra sig við heilsusérfræðing áður en þú ferð í hreinsa lifrina.



