Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Greinar

ÓÐINSFLÆÐI – víbrandi skemmtilegt tónlistar- og jógaflæði á Óðinsgötu/torgi á laugardag

Það víbrar fallega á Óðinsgötunni milli Systrasamlagsins, Mengis og Smekkleysu sem taka höndum saman með Sumarborginni og efna til Óðinsflæðis laugardaginn 24. júlí með töfrandi dagskrá frá hádegi fram á kvöld. Óðinsgötunni verður lokað og hið vel lukkaða Óðinstorg fullnýtt. Tónlist, jóga, gong og skálar koma við sögu. Margir kyngimagnaðir listamenn á vegum Mengis og Smekkleysu og Íslenskar seiðkonur heiðra borgarbúa með nærvöru sinni. Að sögn systranna í Systrasamlaginu verður flæðið á Óðinsgötunni á laugardag sérlega ljúft en byrjað verður á mjúku nótunum og endað í stuði með FM Belfast.

Dagskráin hljóðar nákvæmlega svona:

12:00 Fjölskyldujóga með Drífu og Hrafnhildi aka Íslenskum seiðkonum *

13:00 Íslenskar Seiðkonur spila á Gong og skálar á Óðinstorgi

14:30 Benni Hemm og hljómsveit á Óðinstorgi

15:00 DJ Sóley

16:00 Steinunn Eldflaug á Óðinstorgi

17:30 DJ Sley

18:00 DJ Stína Ágústsdóttir

19:00 DJ FM Belfast

Það verður líka nóg að bíta og brenna því bæði Systrasamlagið, Sælkerabúð Bergsson og Snaps verða með veitingar á torginu og ef til vill sjáum fleiri nágrönnum Óðinsgötunnar bregða fyrir. Þetta er allt í flæði. Óðinsflæði.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing