Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Greinar

ÓNÆMISHEILSAN ALDREI MIKILVÆGARI

COVID-19 hefur og er ennþá að kenna okkur að forgangsraða heilsu okkur. Rannsóknir sýna 50% aukingu hjá neytendum sem leita eftir ónæmisstyrkjandi fæðubótarefnum, ekki af ástæðulausu. Það eru efni eins og sink, B-vítamínin, C og D-vítamín, túrmerik og engifer. Það má heldur ekki gleyma chaga og reishi sveppum sem lengi hafa verðið notaðir til að styrkja ónæmiskerfið í óhefðbundnum lækningum, sem eru kannski ekki svo óhefðbundin lengur.

D-vítamín drottningin

Líklega heldur þó D-vítamínið að vera alfa og omega alls. D-vítamín heldur áfram að leiða hleðsluna sem topp næringarefnið fyrir heilsuna. Það gegnir lykilhlutverki í ónæmi, andlegri líðan, bein- og húðheilsu og vernd gegn langvinnum sjúkdómum. D-vítamín var mikið í fréttum 2020 þar sem ýmsar rannsóknir tengdu lágt D-vítamíngildi með aukinni hættu á fylgikvillum COVID-19. Hins vegar er þörf á frekari rannsóknum.Gert er ráð ráð fyrir D-vítamín markaðurinn muni aukast um 7,2% til ársins 2025.

C-vítamín afar mikilvægt fyrir ónæmiskerfið til að verjast sýkingum. Undanfarið hefur vaknað mikill áhugi margra á að næra sig með forvarnir og almennt betri líðan í huga. Þá er mikilvægt að ítreka að C-vítamín er eitt af miklilvægustu næringarefnunum sem á stærsta þáttinn í viðspyrnu ónæmiskerfisins og hægir á öldrum og hrörnun líkamans.

Ef þú kýst að taka inn C-vítamín, sem margir ættu að gera, er mikilvægt að það sé unnið úr óerfðabreyttri fæðu. Þá fer mun betur í marga að C-vítamínið sé í fylgd fitusýra, án þess að það sé endilega “liposomal”. Því miður er mikið af liposomal C-vítamíni kemískt unnið, oft prófað á dýrum og stundum erfðabreytt. Hafðu heldur C-vítamínið náttúrulega unnið, í fylgd góðra fitusýra, án aukaefna og í öllum bænum, forðist það sem hefur verið prófað á dýrum. Þannig er C-vítamínið frá Virdian.

Sink hjálpar líkamanum að nýta betur fæðuna til orkuframleiðslu. Þetta steinefni styrkir einnig ónæmiskerfið kemur í veg fyrir að RNA vírusinn bindi sig við frumurnar Sink styrkir slímhúðina. Hér er blanda af C-vítamín og sinki í góðum hlutföllum, sem styrkir líka meltingarveginn,

Virka efni í CoQ10, Ubiquinol, verndar frumurnar gegn oxandi skemmdum. CoQ10 er afar mikilvægt fyrir alla hjartastarfsemi, en hjartabilun er oft afleiðing annarra hjartavandamála, eins og kransæðasjúkdóma eða hækkaðs blóðþrýstings. Það getur leitt til oxandi og bólgu í æðum. Hjartabilun á sér stað þegar þessi vandamál hafa slík áhrif á hjartað að það getur ekki lengur dregist saman, slakað á eða dælt blóði í gegnum líkamann.

Meltingin er líka mikilvæg fyrir sterkt ónæmiskerfið og ekkert er mikilvægara meltingu mannsins en maginn. Það er augljóst en vill stundum gleymast. Maginn framleiðir hydroklóríð sýru eða magasýur og ensím til að tryggja fullnægjandi niðurbrot og frásog næringar úr matnum. Há sýra (sem merkir lágt PH) í maga hefur líka reynst vel til að koma í veg fyrir sýkingar af völdum örvera, sem geta ferðast í gegnum meltinguna með mat og lofti. Svo er annað: magasýrur melta prótein og draga úr hættu á því að matur valdi okkur ofnæmum og allskyns óþoli.Hér er því HCL fyrir þá sem vilja hafa sterka meltingu.

Túrmerik en ennþá vaxandi stjarna og talið er að það ná ennþá meiri útbreiðslu 2022. Túr­merik er í raun bólgu­eyðandi blóðel­exír vegna þess að það örv­ar blóðflæðið. Það þynn­ir blóðið og hreins­ar það og því mikilvæg vörn fyrir ónæmiskerfið. Túr­merik dreg­ur líka úr lofti í melt­ingu, er mjög gott fyr­ir húðina, bakt­eríu­drep­andi, sveppa­drep­andi og gerla­drep­andi. Það flýt­ir fyr­ir því að sár grói og er verkj­astill­andi. Einnig hef­ur komið fram að túr­merik hjálp­ar þeim að ná bata sem hafa þurft að gang­ast und­ir lyfjameðferðir. Rann­sókn­ir sýna jafn­framt að túr­merik get­ur létt þeim lífið sem þjást af sóras­is og liðagigt.

Andrographis, hin óvænta stjarna Svo er ekki hægt að skauta framhjá jurtinni Andrographis, sem fæst loks á Íslandi. Hún  er jafn vinsæl og parasetamól Tælandi til að meðhöndla kvefi og flensu.í ljósi neyðarástands sem skapaðist þegar Covid reis sem hæst í Tælandi ákvað hið opinbera að gefa alls 11.800 föngum þetta náttúrulyf við vægum einkennum veirunnar og niðurstaðan var sú, að því er Tælensk stjórnvöld greindu frá, að 99% fanganna náðu sér. Þetta varð til þss að Tælenska mennta- og vísindráðuneytið lagði til að aðeinkennalausir tækju 60 gr af jurtinni 3 x á dag með mat. Nú eru margar spennandi vísindarannsóknir í gangi með Andrographis.

Það er líka mikilvægt að hafa fjölbreytta meltingarflóru. Hér er úrval af þeim og eitthvað sem hentar ólíku ástandi.

Heimildir:

https://www.mordorintelligence.com/industry-reports/vitamin-d-supplements-market

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing