Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Greinar

SLÖKUN Í BORG, fyrir alla

SLÖKUN Í BORG, fyrir alla, samstarfsverkefni Thelmu Bjarkar jógakennara og Systrasamlagsins, verður ýtt úr vör 10. nóvember n.k…

SLÖKUN Í BORG, fyrir alla, samstarfsverkefni Thelmu Bjarkar jógakennara og Systrasamlagsins, verður ýtt úr vör 10. nóvember n.k. í Systrasamlaginu Óðinsgötu 1. Verkefnið, sem standa mun yfir næstu mánuði, miðar að því að fá sem flesta til að slaka á og hugleiða við ólíkar aðstæðum á ólíkum stöðum í borginni.

Fyrsta verkefnið er að bjóða öllum sem vilja að vera þátttakendur í 40 daga hugleiðslu sem hefst í Systrasamlaginu 10. nóvember og lýkur á sama stað 19. desember undir leiðsögn Thelmu Bjarkar jógakennara.

Hluti af 40 daga hugleiðslunni fer m.a. daglega fram 11. til 19. desember í Systrasamlaginu kl. 16. 30. Við verðum einnig á AALTO bistró í Norræna húsinu 10. og 11. desember (nánari tímasetning í Norræna húsinu verður auglýst á vef og facebókarsíðu Systrasamlagsins).
Mörg önnur slökunar- og hugleiðsluverkefni eru í farvatninu á ólíkum stöðum og tímum í borginni. En auk Systrasamlagsins og AALTO bistro munu hugleiðslu og slökunarstundir eiga sér stað í kirkju, í vatni, undir berum himni, við saumaborðið og á stöðum sem þið hafið ef vill ekki gert ykkur í hugarlund að hægt sé að hugleiða eða slaka á.

40 daga hugleiðslan
Nú þegar styttist í aðventuna finnst okkur við hæfi að hefja SLÖKUN Í BORG, fyrir alla, á 40 daga hugleiðslu í Systrasamlaginu 10. nóvember kl. 18.30.
Fyrir valinu hefur orðið svokölluð heilunarhugleiðsla sem gott er að stunda í 11 mínútur á dag (eða lengur eða skemur). Thelma Björk fer vandlega yfir heilunarhugleiðsluna 10. nóvember í Systrasamlaginu, sem allir geta svo tekið með sér og stundað hvar og hvenær sem er.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Hvað er hugleiðsla og slökun?
Fjölmargar vísindalegar rannsóknir styðja að hugleiðsla og slökun getur auðveldlega dregið úr daglegi streitu, fært okkur innri frið og bætt líkamlega og andlega líðan okkar, sem er vaxandi þörf á í nútímasamfélagi. Hugleiðsla hefur verið stunduð í þúsundir ára. Upphaflega svo fólk kæmist í djúpa snertingu við helga og dulræna krafta náttúrunnar, en í dag miklu fremur til að ná slökun og kyrra hugann, þótt annað og meira geti vissulega hangið á spýtunni.

Aðeins örfárra mínútna slökun og hugleiðsla á dag getur raðað öllu í réttar hillur, róað og fært innri frið. Allir geta iðkað slökun og hugleiðslu. Það er einfalt og ódýrt og krefst í raun engra sérstakra hæfileika. Slökun og hugleiðsla þarfnast heldur engrar sérstakrar umgjarðar. Hugleiðsla og slökun snúast að miklu leyti um að vingast við það sem við erum nú þegar og um að vera til staðar, með okkur sjálfum, öðru fólki og samfélagi okkar.

Frekari upplýsingar um viðburði á vegum SLÖKUNAR Í BORG, fyrir alla ofl. verða birtar jafnt og þétt á heimasíðu Systrasamlagsins.
Fylgist með hér á  www.systrasamlagid.is

Nánari upplýsingar veita:
Thelma Björk jógakennari og stjórnandi verkefnisins í síma: 8441992.
Guðrún Kristjánsdóttir í Systrasamlaginu í síma: 8919683.

UM VANANN:
Það tekur 40 daga að brjóta upp vanann.
Það tekur 90 daga að búa til nýjan vana.
Það tekur 120 daga að festa nýjan vana í sessi.
Það tekur 1000 daga að verða meistari nýja vanans.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing