Thelma Björk jógakennari um verkefnið SLÖKUN Í BORG:
“Ég held að þörfin fyrir slökun og meðvitaða öndun hafi aldrei verið meiri en í dag. Við lifum á tímum sem einkennast af hraða og álagi. Og því mikilvægt að gefa sér tíma til að draga djúpt inn andann og gefa sér leyfi til að slaka. Að finna að kyrrðin er innra með okkur, “ segir Thelma og bætir við:
“Aðalmarkmiðið verkefnisins að tengja, kjarna íbúa, starfsfólk og gesti miðborgarinnar og að slökun verði hluti af daglegu lífi borgarbúa og gesta borgarinnar. Með hugleiðslustundum í miðborginni byggjum við aðlaðandi og fölbreyttari miðborg. Í gegnum samveru, slökun og upplifun tengjumst við sjálfum okkur og öðrum.”
HLUSTA Á VIÐTAL VIÐ THELMU BJÖRK Í ÞÆTTINUM SEGÐU MÉR.
Slökun í borg er styrkt af Reykjavíkurborg.





