Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Systrasamlagið — síðan 15. júní 2013

Um okkur

Sagan

Verslun og lífrænt kaffihús með andann með í efninu.

Systrasamlagið, sem nú er til húsa við Óðinsgötu 1, var stofnað 15. júní 2013 við Suðurströnd 10 á Seltjarnarnesi og er að segja má alveg nýtt konsept í verslunar/kaffihúsarekstri á Íslandi.

Systrasamlagið er í senn töfrandi verslun og lífrænt kaffihús byggt á þeirri hugsjón að víkka út hugmyndina um heilsubúð og færa nær almenningi. Hafa andann alltaf með í efninu. Án aukaefna og sykurs.

Systurnar Jóhanna og Guðrún fyrir framan Systrasamlagið
StofnendurJóhanna & Guðrún
Frumkvöðlar

Þannig tókum við systur, Jóhanna & Guðrún, þá stefnu strax í upphafi að bjóða ekki eingöngu upp á holla og góða fæðu, lífrænt kaffi og lífræna Bíóbú mjólk, vönduð bætiefni og aðrar þekktar heilsuvörur.

Heldur teljumst við frumkvöðlar í sölu á fallegum lífrænum jógafatnaði, jógavörum, eiturefnalausum ilmum, snyrtivörum, litríkum latté drykkjum (boðið var upp á fyrsta túrmerik-latté-inn hjá okkur 2015) og cacaóinu góða. Systrasamlagið var til að mynda fyrst til að selja saman holla og lífræna þeytinga og gæða súrdeigs samlokur. Ennfremur sem skálar Systrasamlagsins og annað góðgæti úr úrvals hráefni hefur náð miklum vinsældum.

Einnig má nefna að Systrasamlagið lagði á sig sjálfboðavinnu, til að byggja upp fyrstu reglulegu Samflotin á Íslandi. Upp úr því spruttu fjölmörg Sveitasamflot sem Systrasamlagið lagði grunninn að á Flúðum, í Laugaskarði og Varmá og hélt utan um í 6 ár. Hitt er líka að Systrasamlagið er alveg örugglega fyrsta kaffihúsið á Íslandi sem lagði tarotspilin á borðið sem fólk hefur notið samhliða dagblaðalestri og notalegu spjalli.

Gildin okkar

Það sem við stöndum fyrir.

Plastlaus síðan 2013

Niðurbrjótanlegar náttúrulegar umbúðir og vönduð flokkun sorps.

Lífræn vottun & Fair Trade

Lífræn vottun og sanngjörn viðskipti eru efst á blaði. Gildin eru skýr.

Andi & líkami

Heilsubúð skrefinu lengra — hlúð er að andlegu hliðinni ekki síður en þeirri líkamlegu.

Fyrirtæki ársins 2015

Systrasamlagið var valið fyrirtæki ársins á Seltjarnarnesi árið 2015.

Áfangar

Frá Seltjarnarnesi að Óðinsgötu.

2013

Stofnað

Systrasamlagið stofnað 15. júní 2013 við Suðurströnd 10 á Seltjarnarnesi — nýtt konsept í verslunar- og kaffihúsarekstri á Íslandi.

2015

Fyrirtæki ársins

Valið fyrirtæki ársins á Seltjarnarnesi. Sama ár var boðið upp á fyrsta túrmerik-latté-inn hjá okkur.

2017

Óðinsgata 1

Flutti 10. mars á Óðinsgötu 1 í Reykjavík (gegnt Mengi), þar sem regluleg hugleiðsla og heilsunámskeið bættust við.

Í dag

Heilsubúð sem hlúir að andanum líka.

Það að taka hugmyndina um heilsubúð skrefinu lengra og hlúa ekki síður að andlegu hliðinni en þeirri líkamlegu, hefur sannlega vakið talsvert umtal og athygli.

Við höfum líka lífræna vottun og sanngjörn viðskipti (Fair Trade) efst á blaði og leggjum mikinn metnað í að orðsporið um fyrirtækið haldi áfram að spyrjast þannig út. Gildin eru skýr. Í dag stendur regluleg hugleiðsla öllum opin vikulega, ásamt fjölmörgum fræðandi og skemmtilegum heilsunámskeiðum.

Hugleiðsla hjá Systrasamlaginu

„Með þetta allt að leiðarljósi kom ekki annað til greina í okkar huga en að notast við niðurbrjótanlegar náttúrulegar umbúðir og að vanda okkur við flokkun sorps. Þannig höfum við verið plastlausar síðan 2013.“

Kærar kveðjur,

Systurnar · Jóhanna & Guðrún

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing