
FULLBÓKAÐ. 3ja daga endurræsing 7., 8. og 9. OKTÓBER 2025. Allar máltíðir og jurtir innifaldar.
Vinsæl og ljúf en um leið öflug endurræsing fyrir þá sem kjósa létta á meltingunni og ná upp orku eftir ljút sumar. Hér er fullkomin leið til að ná blóðsykursjafnvægi og stíga frábær heilsuskref haustið 2025. Fer fram…
UNDIRBÚNINGUR:
Til að tóna sig fallega niður mælum við líka með ljúfum göngutúrum, léttu jóga og djúpum andardrætti.
Þetta snýst meira um að borða einfaldan mat og staldra við.
Reyndu að draga úr streitu í lífi þínu, eins og þú mögulega getur. Hugsaðu þessa þrjá daga fyrir þig. Hvernig svosem líf þitt er. Gefðu þér tíma til að fara í jóga, jafnvel hugleiða, eða í það minnsta að anda djúpt.
Ef þú drekkur kaffi er gott að minnka kaffidrykkjuna eða að sleppa henni.
1 góður kaffibolli á dag er þó í góðu lagi.
Láttu fjölskyldu og vini vita, svo þeir gefi þér smá breik.
Þessi 3ja daga hreinsun er mjúk og veldur almennt ekki óþægindum. Þó má alveg búast við einhverjum smávegis sveiflum á líkamlega eða andlega sviðinu. Ekkert til að hafa áhyggjur af.
Hér er um að ræða 3ja daga kitchari hreinsun, sem lítur svona:
Í tvo daga borðar þú hafragraut í morgunmat og Systrasamlags kitchari í hádegis- og kvöldmat.
Á degi þrjú færðu þér hafragraut eða eplagraut í morgunmat, kitchari í hádeginu og næringarríka Systrasamlagssúpu í kvöldmat.
Líkt og þú fórst rólega inn í hreinsunina, er gott að fara rólega út úr henni aftur. Þannig að við mælum með góðum grænmetismat á fjórða degi.
Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. Sendum samdægurs alla virka daga fyrir kl. 14. 14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum.
Handvalið af systrum
Hver vara valin eftir sömu reglu og systurnar sjálfar myndu velja.
Lífrænt & rekjanlegt
Rekjanleg innihaldsefni frá næringarríkustu svæðum heims.
Engin fylliefni
Bara virk innihaldsefni í raunverulegum skammti — engin málamiðlun.
Ráðgjöf fylgir
Þekking og ráðgjöf systranna fylgir hverri pöntun.









