Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
UppseltFULLBÓKAÐ. AYURVEDA 101- kryddin, jurtirnar og brögðin sex
 - Verkfæri fyrir léttan líkama og anda. 7. mars

FULLBÓKAÐ. AYURVEDA 101- kryddin, jurtirnar og brögðin sex
 - Verkfæri fyrir léttan líkama og anda. 7. mars

13.500 kr.
Ekki til á lager
1
Örugg greiðsla — upplýsingar þínar eru verndaðar

Sérlega fræðandi og skemmtilegt námskeið með Heiðu Björk Sturludóttur, Ayurveda Practitioner verður í Systrasamlaginu mánudaginn 7. mars.

Heiða Bjök sem lauk nýlega námi við Kerala Ayurveda Academy er líklega sá Íslendingur sem hefur sótt mesta menntun um ayurveda fræðin,

Á þessi síðdegisnámsskeiði verður farið ofan í saumana á því hvernig við getum létt okkur og lífið í gegnum lækningajurtir, krydd og mat með tilliti til hverrar líkamsgerðar. 

Hugmyndir um heilunarmátt krydda og jurta í ayurveda fræðunum ganga út á það að hvert innihaldsefni sem notað er í matargerð eða er tekið inn feli í sér mismunandi eiginleika sem ýta undir heilbrigði mannsins. Þessir eiginleikar birtast í mismunandi bragðtegundum sem eru sex talsins.

Fjallað verður um bragðtegundirnar sex sem finnast í öllum mat, kryddum og jurtum. Útskýrt verður hvaða eiginleika hver bragðtegund býr yfir, þ.e. hvaða áhrif á líkamann hún hefur. Virkar hún hreinsandi á líkamann og þá sérstaklega á blóð og lifur, eða er hún með mikinn næringarmátt og er notuð til uppbyggingar á líkamanum?  Það eru bragðtegundirnar sem ayurveda lítur til, frekar en prótein, kolvetni, fita og kaloríur þegar verið er að velja heilnæma fæðu sem viðheldur jafnvægi í líkamanum. Enda eru vestræn læknavísindi farin að viðurkenna að það er fleira en kaloríur sem skipta máli þegar útskýra á þyngdaraukningu eða velja mat sem hjálpar til við að grennast.

Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöðuatriðin í ayurveda lífsvísindunum og síðan stokkið yfir í jurtirnar og kryddin og útskýrt hvernig hægt er að nota þessi næringarefni til að vinna markvisst að heilsubót.

Um leið horfir Heiða til þess að vorið er í vændum sem er helsti hreinsunartími ársins. Hvað bera að hafa í huga á vorin þegar kapha eykst í náttúrunni og okkur sjálfum?

Ýmislegt verður til sölu sem ayurveda fræðin nota til að styrkja kerfi líkamans bæði jurtir og krydd, olíur og ghee.
Hvar: Systrasamlagið, Óðinsgötu 1

Hvenær: 7. mars frá 17:30 til 20.00

Verð: 13.500

Innifalið er kvöldmatur: Bragðgóður hrísgrjóna/mungbauna réttur (kitsarí) og heilandi túrmerik drykkur.

20% afsláttur af ayurvedaráðgjöf hjá Heiðu Björk

10% afsláttur af 3ja daga endurræsingu hjá Systrasamlaginu í mars.
3ja daga endurræsingur verða 14. – 16. mars og 28. – 30. mars.
Hafið samband til að fá afsláttarkóða á endurræsingar.

Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. Sendum samdægurs alla virka daga fyrir kl. 14. 14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum.

Handvalið af systrum

Hver vara valin eftir sömu reglu og systurnar sjálfar myndu velja.

Lífrænt & rekjanlegt

Rekjanleg innihaldsefni frá næringarríkustu svæðum heims.

Engin fylliefni

Bara virk innihaldsefni í raunverulegum skammti — engin málamiðlun.

Ráðgjöf fylgir

Þekking og ráðgjöf systranna fylgir hverri pöntun.

FULLBÓKAÐ. AYURVEDA 101- kryddin, jurtirnar og brögðin sex
 - Verkfæri fyrir léttan líkama og anda. 7. mars
13.500 kr.

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing