
Túrmerik Latté / gullna mjólk Systrasamlagsins. 20 skammtar
Túrmerik latté eða gullna mjólk Systrasamlagsins – 20 skammtar
Lífrænn túrmerik latté Systrasamlagsins er einstaklega vinsæll drykkur á Boðefnabarnum okkar. Hann má nú loks fá til að gera heima. Líka frábær til að taka með í ferðalagið.
Túrmerik latte er þekktur sem “Gullna mjólkin” eða “Haldi Ka Doodh”. Gullna mjólkin á rætur í suðaustur Asíu þar sem túrmerikrót með öðrum lækningajurtum var blandað út í heita mjólk eða jurtamjólk.
Blandan er í senn lífræn og vegan.
Inniheldur: Túrmerik duft (curcuma longa)* , kakóduft (cacao)*, kardimommur (eletteria cardamomum), vanilluduft (vanilla planifolia)*, pippali (piper longum).
*lífrænt vottað.
Túrmerikduftið er frá Indlandi og lífrænt vottað af Ecocert.
Kakóduftið er frá Suður-Ameríku og lífrænt vottað af Organic Food Federation.
Notkun: Blandið 1/2 tsk saman við 100 ml af mjólk eða jurtamjólk. Hitið að suðu (flóið). Ekki sjóða. Blandið einnig saman við 1/4 -1/2 tsk af kókosolíu og/eða kakósmjöri, ef vill. Njótið.
Mælum sérstaklega með að það blandið möndlurísmjólk eða kókosmjólk frá Rude Health. Passar síður með haframjólk.
40 gr. 20 skammtar.
Hver skammtur kostar 175 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. Sendum samdægurs alla virka daga fyrir kl. 14. 14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum.
Handvalið af systrum
Hver vara valin eftir sömu reglu og systurnar sjálfar myndu velja.
Lífrænt & rekjanlegt
Rekjanleg innihaldsefni frá næringarríkustu svæðum heims.
Engin fylliefni
Bara virk innihaldsefni í raunverulegum skammti — engin málamiðlun.
Ráðgjöf fylgir
Þekking og ráðgjöf systranna fylgir hverri pöntun.









