
FULLBÓKAÐ. Námskeið í heilunar hugleiðslu eftir leiðbeiningum Bjargar Einarsdóttur. Hefst 9. október
Fimmtudaginn 9. október 2025, ætlum við hjá Systrasamlaginu að bjóða uppá námskeið í heilunarhugleiðslu. Námskeiðið byggir á bók Bjargar Einarsdóttur ; Speglun Stjarnanna í sálinni. Þetta er 14 vikna námskeið og er…
Nánari uplýsingar um bakgrunn Bjargar má finna á www.bjorgeinars.is
Hjördís Þóra Jónsdóttir; Leiðir og tengir hópinn.
Þær sem halda utanum hópinn með henni eru; Katrín Þorvaldsdóttir, Þórey Ingveldur Guðmundsdóttir og við systurnar Guðrún og Jóhanna Kristjánsdætur.
Við hlökkum til að upplifa með ykkur þetta ferðalag inn í undraheima sálarinnar. Þegar ljós sálnanna og verndara þeirra koma saman, ásamt verndurum allra leiða verður til mikið ljósmagn sem býður uppá mikla andlega umbreytingu. Allar innri breytingar leiða svo oftar en ekki til ytri breytinga.
Fyrri hluti námskeiðið kostar 20.000 krónur.
Innifalið í því verði er bók Bjargar Einarsdóttur Speglun stjarnanna í sálinni.
Og 25% afsláttur af hugleiðslum Bjargar Einarsdóttur fyrir þau ykkur sem sækja námskeiðið.
Verið velkomin með í þetta stórkostlega hugleiðsluferðalag.
Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. Sendum samdægurs alla virka daga fyrir kl. 14. 14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum.
Handvalið af systrum
Hver vara valin eftir sömu reglu og systurnar sjálfar myndu velja.
Lífrænt & rekjanlegt
Rekjanleg innihaldsefni frá næringarríkustu svæðum heims.
Engin fylliefni
Bara virk innihaldsefni í raunverulegum skammti — engin málamiðlun.
Ráðgjöf fylgir
Þekking og ráðgjöf systranna fylgir hverri pöntun.









