Fullyrða má að rhodiola (burnirót) sé goðsagnakennd jurt. Í samtímanum þekkt adaptogen, altsvo náttúrulegt efni sem eykur viðnám líkamans gegn streitu.
Að neyta aðlögunarefna eins og burnirótar á streitutímum er talið hjálpa fólki betur að takast betur á við streituvaldandi aðstæður.
Ein rannsókn kannaði áhrif rhodiola jurtakrafts á 101 manneskju sem þjáist af streitu í lífi og starfi. Þátttakendur fengu 400 mg á dag í fjórar vikur.
Niðurstaðan:
Einstaklingar fundu mun betur viðnám við streitu og jafnframt minni þreytu, slen og kvíða, eftir aðeins þrjá daga. Þessi betri líðan hélst út rannsóknina.
Inntaka rhodiola/burnirótar hefur einnig bætt einkenni kulnunar, sem geta komið fram við langvarandi streitu.
Það sem meira er, í rannsókn sem gerð var á 118 einstaklingum með streitutengda kulnun, bætti hún úr mörgu, þar með talið streitu og þunglyndi (4Trusted Source).
Getur dregið úr þreytu
Streita, kvíði og ófullnægjandi svefn eru meðal þátta sem geta stuðlað að þreytu, sem getur valdið líkamlegri og andlegri þreytu.
Vegna aðlögunar eiginleika er talið að rhodiola dragi úr þreytu.
Ein fjögurra vikna rannsókn á 60 einstaklingum með streitutengda þreytu skoðaði áhrif hennar á lífsgæði og einkenni þreytu, þunglyndis og athygli. Þátttakendur fengu ýmist 576 mg af rhodiola eða lyfleysu daglega.
Í ljós kom að rhodiola hafði jákvæð áhrif á þreytustig og athygli, samanborið við lyfleysu.
Í svipaðri rannsókn fengu 100 manns með síþreytueinkenni 400 mg af rhodiola á hverjum degi í átta vikur. Þeir fundu fyrir verulegum framförum í streitueinkennum, þreytu, lífsgæðum, skapi og einbeitingu
Þessi jákvæðu einkenni komu fram eftir aðeins eina viku og hélt áfram að bata eftir því sem líða tók á rannsóknina.
Sýnt hefur verið fram á að rhodiola dregur úr mörgum einkennum þunglyndis. Líkt og þunglyndislyf, getur burnirótin haft jákvæð áhrif á taugaboðefni sem hafa áhrif á skap og tilfinningar.
Bætir heilastarfsemi
Hreyfing, rétt næring og góður svefn eru leið til að halda heilanum gangandi.
Sum fæðubótarefni geta einnig hjálpað, þar á meðal rhodiola.
Ein rannsóknnanna kannaði áhrif þess á andlega þreytu hjá 56 læknum sem vinna næturvakt.
Læknum var af handahófi úthlutað annað hvort 170 mg af rhodiola eða lyfleysu á dag í tvær vikur.
Rhodiola minnkaði andlega þreytu og bætti frammistöðu í vinnutengdum verkefnum um 20%, samanborið við lyfleysu.
Önnur rannsókn kannaði áhrif rhodiola á næturvinnu. Hermenn á vakt fengu ýmist 370 mg eða 555 mg af rhodiola, eða einn af hverjum tveimur lyfleysu daglega í fimm daga.
Báðir skammtarnir reyndust bæta getu hermannna til andlegrar vinnu samanborið við lyfleysu.
Í annarri rannsókn fundu nemendur fyrir verulega minni andlegri þreytu, bættu svefnmynstri og aukinni getu til náms eftir að hafa tekið rhodiola fæðubótarefni í 20 daga. Prófniðurstöður þeirra voru einnig 8% hærri en í lyfleysuhópnum.
Einnig hefur verið bent á að Rhodiola rosea virki líkt og vægt þunglyndislyf því það viðhaldi jafnvægi á taugaboðefnum í heila.
Það er best að taka rhodiola á fastandi maga, en ekki fyrir svefn, þar sem það hefur smá örvandi áhrif. Besti skammturinn af rhodiola til að bæta einkenni streitu, þreytu eða þunglyndis er 400–600 mg í einum skammti á dag. Ef þú ert á höttunum eftir frammistöðuhækkandi áhrifum skaltu taka 200–300 mg klukkustund eða tveimur fyrir æfingu.
Heimildir:
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/26502953/
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/29325481/
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/22228617/
https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC5370380/
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/19016404/
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/28219059/
https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC4008828/
https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC2805706/
https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC2656292/
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/12725561/
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/10839209/
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/21036578/
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/22643043/