Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Heilsan

CoQ10 GETUR KOMIÐ Í VEG FYRIR AÐ HÚÐIN ELDIST ILLA. Taktu inn og berðu á þig

Það er ekkert leyndarmál að oxun af völdum skaðlegra sindurefna getur skemmt húðina. Þar sem þessi sindurefni safnast upp með tímanum getur skaðinn orðið sífellt meira áberandi í húð okkar. Með því að nota rakagefandi sólarvörn (t.d. taka inn SPF), nota serum með góðri andoxun og/eða það sem er mest um vert; taka inn kröftug andoxunarefni getur þú takmarkað eða jafnvel komið í veg fyrir skemmdir af völdum sindurefna og þannig ýtt undir að  húðin haldast sléttari, ungleg og ljómandi miklu lengur. Eitt af minna þekktu andoxunarefnunum, – CoQ10 er svo miklu mikilvægara fyrir húðina en áður var talið. CoQ10 minnkar í líkamanum eftir því sem við eldumst og því er nauðsynlegt að finna skynsama leið til að fá það inn í líkamann á ný.

HVAÐ ER CoQ10?

CoQ10 (einnig kallað kóensím Q) er æði öflugt andoxunarefni sem hjálpar til við að hlutleysa sindurefni sem geta skaðað frumur okkar. Það er búið til í hvatberum líkamans, nánar tiltekið í orkuveri frumunnar eða þar sem orka  okkar er framleidd. Í keðju efnahvarfa styður CoQ10 frumuorkuframleiðsluna með hlutverki sínu.

HVERNIG GETUR CoQ10 HJÁLPAÐ HÚÐINNI?

Forklínískar rannsóknir sýna að CoQ10 getur sannarlega verndað húðfrumur gegn þessu oxunarálagi og fyrir skemmdum af völdum t.d. UVA og UVB geisla, sem hafa smám saman áhrif á útlit húðarinnar. CoQ10 ýtir jafnframt undir framleiðslu á kollageni; próteini sem er vel þekkt fyrir að gagnast uppbyggingu húðarinnar okkar.

HVERSU MIKIÐ CoQ10 Á ÉG AÐ TAKA?

Því miður innihalda fá matvæli CoQ10: Helstu fæðugjafarnir eru þó kjöt, innmatur, fiskur og hnetur. „Venjulegt“ vestrænt mataræði gefur fólki um það bil þrjú til fimm milligrömm af CoQ10 á dag. Ef kjöt, fiskur og hnetur eru ekki fastur hluti af daglegu mataræði þínu, þá færðu líklega ennþá minna. Það er langt undir ráðlögðum dagskammti fyrir CoQ10. Rannsóknir sýna að fæðuviðbót sem nemur við 30 til 400 milligrömmum hefur góð áhrif. Og um 50 til 150 milligrömm er það sem húðin þarf til að haldast slétt og ljómandi miklu lengur.

Frá Virdian fæst mjög mikilvæg og vel unninn 100 mg CoQ10 blanda með MCT olíu sem er hið fullkoma burðarefni fyrir CoQ10. Við systur getum ekki nógsamlega mælt með CoQ10 sem ekki bara verndar húðina heldur er líka ákaflega mikilvæg fyrir hjartað (sem er efni í aðra grein).

Þá viljum við líka nefna Wild Grace ELIXIR-inn sem er sérlega kraftmikið handunnið  lúxus serum með framúrskarandi andoxunarefnum og róandi innihaldsefnum sem virka eins og hunangslögur fyrir húðina. Inniheldur hyalaronic sýru sem færir djúpan raka og verndar gegn skaðlegum umhverfisáhrifum. Líka ríkulegt af co-ensími Q10, olífu sebum, bláa tansy olíu og jojoba olíu sem er blönduð með rós, morgunfrú sem og lavandin, rót af læknastokkrós og vanillu.

Tvær aðrar bætiefnablöndur frá Virdian innihalda CoQ10 en það eru Cardio multí og Sport multí, ekki af ástæðulausu.

 
Helstu heimildir:
https://www.frontiersin.org/articles/10.3389/fphys.2018.00044/fullir
https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC4112525/
Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing