Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Ayurveda

EKKI VERA PIRRUÐ OG SÚR PITTA Í SUMAR

„Til að gera langa sögu stutta stend­ur pitta fyr­ir frum­efn­in eld og vatn sem býr í okk­ur öll­um en er þó ríkj­andi hjá þeim sem skora hæst sem pitta…

„Sum­arið er tími gleðskap­ar, braðgmik­ils mat­ar og grill­veisla en einnig tími sjóðheitra pitta sam­kvæmt ind­versku ayur­veda-fræðunum. Til að gera langa sögu stutta stend­ur pitta fyr­ir frum­efn­in eld og vatn sem býr í okk­ur öll­um en er þó ríkj­andi hjá þeim sem skora hæst sem pitta lík­ams/​hug­ar­gerðir (taktu prófið). Það er alltaf gott að að hlúa að pitt­unni í okk­ur öll­um en um­fram allt ættu þeir að gera það sem koma sterk­ir út úr pitta-próf­inu. Því eins magnað element og eld­ur­inn er get­ur pitt­an líka brunnið yfir og orðið ótrú­lega súr og pirruð en vatnið get­ur líka slökkt eld­inn.”

Al­veg eins og mann­fólkið skipt­ast árstíðirn­ar hver í sína dos­hu sem eru; kapha, vata og pitta. Þær byggja á frum­efn­un­um fimm; eter, lofti, eldi, vatni og jörð. Þegar allt er í jafn­vægi inn­an hverr­ar mann­eskju erum við í mjög já­kvæðu (satt­vísku) ástandi. En fræðin kenna líka hvernig auðveld­lega megi rétta úr þegar ójafn­vægi skap­ast sem er að gera önd­vert við það sem við erum í grunn­inn. Skoðum pitt­una bet­ur:

Pitta er dosha hreyf­ing­ar og umbreyt­inga

Pitt­an er ríkj­andi á sumr­in, raun­ar frá júlí fram í septerm­ber (á norðlæg­um slóðum). Þar sem pitt­an stjórn­ast af eldi og vatni er í hún í sínu besta formi með góða melt­ingu, kýr­skýr og iðandi af fram­kvæmda­orku. Ef melt­ing­in er hins veg­ar ekki góð og ork­an ekki upp á sitt besta kann pitt­an að verða pirruð, súr og hit­inn jafn­vel óþolandi.

Þegar pitt­an er í jafn­vægi þá er hún:

  • Ástrík

  • Fram­kvæmda­söm

  • Með heil­brigða melt­ingu (á líka auðvelt með flók­in prótein eins og mjólk og glút­en)

  • Með gott blóðstreymi

  • Ákveðin

  • Til­bú­in í já­kvæðar breyt­ing­ar.

Merki um pittu í ójafn­vægi:

  • Ból­ur og út­brot

  • Full­komn­un­ar­árátta

  • Gagn­rýn­in á aðra

  • Reið

  • Kald­hæðin

  • Melt­ingatrufl­an­ir/​bak­flæði

  • Öfga­kennd

  • Við upp­lif­um þó öll mis­mun­andi út­gáf­ur af pitta í ójafn­vægi, kannski allt þetta hér að ofan eða bara eitt. Fyrst og fremst þurfa þeir sem eru sterk­ar pitt­ur í sér að gæta sín. Þær eru í mestu hætt­unni á að fara úr jafn­vægi á þess­um tíma árs.

Borðið meiri pittaró­andi og kæl­andi mat

Það er margt gott og ein­falt sem hægt er að gera til að ná jafn­vægi. Það er feg­urðin við ayur­veda. Og haldið ykk­ur nú fast því sæt­ur og sá sem kall­ast er sam­an­drag­andi mat­ur í dag­legri fæðu kem­ur jafn­vægi á pitta.

Sætt: Ok, það er í lagi að borða sætu með betri sykri í. Eins og hun­ang, mable, kó­kosyk­ur, döðlur og allt það en kannski óþarfi að láta það taka yfir líf sitt.

Heilsu­sam­lega fæðan sem róa eld­inn og kæl­ir vatnið er t.d.

  • Korn (þar með talið hafr­ar, bygg og hrís­grjón)

  • Fersk­ir heil­ir ávext­ir (mel­ón­ur, kirsu­ber, fíkj­ur app­el­sín­ur, per­ur, plóm­ur og ber),

  • Eldað rót­argræn­meti (sæt­ar kart­öfl­ur, gul­ræt­ur, róf­ur)

  • Kó­kos­hnetu­af­urðir (þar með talið kó­koskjöt, kó­kos­mjólk kó­kos­vatn)

  • Avóka­dó

  • Mjólk­ur­vör­ur (feit mjólk, rjómi)

  • Fenn­el (bæði fræ­in og græn­metið)

Beiskt: Beisk­ur mat­ur er létt­ur, hef­ur ró­andi áhrif á lík­amann og jafn­væg­istill­ir hit­ann í pitta lík­ams/​hug­ar­gerðinni. Til að njóta góðs af beisk­um mat bættu þessu inn:

  • Laufríku græn­meti

  • Tei, hvort sem er svörtu, með blöndu af tún­fífli (dand­eli­on) eða myntu. Ekki hafa það sjóðheitt.

  • Beisk­ir ávext­ir (þroskað greip, sítr­ón­ur og græn epli)

  • Grænt græn­meti (asp­as, græn­ar baun­ir ag­úrk­ur, kúr­bít­ur)

  • Fersk­ar jurtir (sér­stak­lega kórí­and­er)

Sam­an­drag­andi: Sam­an­drag­andi fæðu get­ur verið kúnst að finna, en þú get­ur merkt hana á því ef hún er þurr á tung­unni. Þessi mat­ur er kæl­andi og um leið létt­ir á lík­ama og anda. Skimaðu eft­ir.

  • Baun­um

  • Lins­um

  • Ávöxt­um (epl­um, ban­ön­um, grana­epl­um og mjög safa­rík­um ávöxt­um)

  • Hráu græn­meti eins og spergilkáli og sell­ríi)

  • Stein­selju, túr­merki

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing