Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Almennt

FALIN FEGURÐ – HIDDEN BEAUTY – Ljósmyndasýning Thelmu Bjarkar á falinni fegurð í Systrasamlaginu.

Thelma Björk sem er menntaður fatahönnuður, jóga og hugleiðslukennari og jákvæðum sálfræðingur er á sífelldum snúningi í sinni listsköpun og fangar gjarnan það sem er ekki víst að aðrir taki eftir. Í tilefni þess að 21. mars næstkomandi er alþjóðlegur dagur downs höfum við aftur opnað hina frábæru sýningu Falin fegurð í Systrasamlaginu sem vakti mikla áherslu á sínum tíma. Komið og njótið. Fögnum fjölbreytileiknum.

Hér má sjá texta sem fylgdi sýningunni þegar hún var fyrst sett upp í Systrasamlaginu:

Að undanförnu, raunar eins og svo oft áður, hefur Thelma Björk setið við hattagerð og hugleiðslu. En nú er það útkoman sem er önnur. Það fáum að sjá með ljósmyndasýningu sem birtist okkur í desember.  Hér er falin fegurð dregin fram í dagsljósið, fegurð í nýju ljósi. Falin fegurð stendur saman af földum fjársjóðum hatta sem Thelma Björk endurhannar og nýju höfuðskarti sem fæddist í ferlinu. Hattarnir fá svo nýja merkingu með fyrirsætunum sem ljá höfuðskarti Thelmu alveg einstakan karakter.

Fyrirsæturnar eru Arna Dís og Katla Sif. Ljósmyndirnar tók Ásta Kristjánsdóttir.

Sýningin stendur að minnsta kosti til páska 2024.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing