Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Ayurveda

HVERNIG ER BEST AÐ BREGAÐST VIÐ KULDATÍÐ!

Lengsta tíð ársins ársins stendur sem hæst. Þetta er tíð tómarúmsins sem mun að líkindum standa yfir hér á landi fram á vor með ýmsum tilbrigðum. Einkenni þessa tímabils eru kuldi, þurrkur, léttleiki, tærleiki, hreyfing, mikið loft en líka sjálft tómarúmið.

Frábær tíð. Svo lengi sem þessir eiginleikar eru í jafnvægi í hverri manneskju má hún eiga von á því að fara í gegnum heilbrigt, skapandi og frjósamt tímabil og fylla þannig upp í tómarúmið. Ef, hins vegar, þessi sömu element safnast fyrir í líkama og huga hvers og eins getur ójafnvægið komið fram með samsvarandi líkamlegum eða tilfinningalegar óþægindum. Má þar nefna svefnleysi, þurra húð, liðagigt, hægðatregðu, háan blóðþrýstingi, kvíða og þunglyndi (tómarúmið). Þessi tíð nefnist vata tími samkvæmt elstu heilisuvísindum heims. Það er til mikils að vinna að reyna að halda sér í sem bestu jafnvægi fram á vor.

Engir 2 eru eins. Þeir sem eru viðkvæmar fyrir vata tíðinni (kulda og þurrki) eru jafnan miklar vatatýpur sjálfar. Í þeim er mikið loft og eter. Svo eru þeir sem eru allt annað í grunninn en geta verið í það sem kallað er vata ójafnvægi. En það eru ærið margir. Því þurfum við mjög mörg að vera vakandi fyrir því að halda jafnvægi.

Hér eru nokkrar hagnýtar hugmyndir um jarðtengingu á þessu síkvika kalda tómarúms tímabili á norðurhveli jarðar. Eitt öflugasta meðalið er matur en miklu meira kemur til.

MATUR:

Borðaðu heitan freskan og vel eldaðan mat. Forðast þurran eða ósoðinn mat (sérstaklega salöt og mikið hrátt grænmeti). Segir sig sjálft.

TÓMARÚMIÐ

Drekktu mikið mikið af heitum vökva. Heitt vatn og jurtate halda líkamanum rökum. Þú getur útbúið ferskt engifer te með því að setja teskeið af fersku rifnu engifer í hálfan lítra hitabrúsa og fylla hana með heitu vatni.

Borðaðu meira af sætu, sýrðu og söltu og minna af því beisku, herpandi og sterku. Avókadó, bananar, mangó, ferskjur, sítrónur, grasker, gulrætur, rófur, aspas, kínóa, hrísgrjón, mung baunir, möndlur, sesamfræ og ghee eru nokkur dæmi framúrskarandi vata róandi matvæli.

Ekki hafa áhyggjur ef matarlystin virðist sterkari en venjulega. Það náttúruleg tilhneiging á veturna að við séum uppfull af tómarúmi vata tímans, í öllum skilningi. En á sama tíma, auðvitað, ekki borða alltof mikið en heldur aldrei vera svöng of lengi.

MJÚK EFNI OG NUDD

Fatnaður, já fatnaður úr mjúkum efnum í jarðlitum og jafnvel í mildum pastellitum róar vata orkuna. Haldið ykkur heitum hvort sem er heima eða á vinnustaðnum og klæddu þig vel. Forðastu dragsúg og verðu eyru og háls.

Til að halda sér heitum er auðvitað frábært að hreyfa sig en líka gefa sér mjúkt líkamsnudd flesta morgna upp úr heitri og lífrænni olíu. Það eru bæði gömul vísindi og ný. Abhyanga nudd er mögnuð aðferð til halda sér heilbrigðum.

SVEFN OG FRIÐSÆLD

Þetta er mikilvægt fyrir þá að að hafa í huga fyrir þá sem eru með sterkt vata sem að þetta er fólkið sem kann sér ekki hóf og gengur á sig líkamlega og andlega. Þess vegna þarf að gæta sérlega vel að svefnininum. Þetta er líka fólkið sem ætti að hugleiða. Þetta er er oft ofvirka fólkið.

Fólkið sem er í vataófjafnvægi hefur tilhneigingu til að þrýsta sjálfum sér að því marki að þeir verða líkamlega eða andlega þreyttir. Lestu meira, róaðu þig, prjónaðu, búðu til afslappandi svefnrútínu. Vertu í nærandi félagsskap. Góð hvíld er nauðsynleg til jafnvægis.

Lærðu að hugleiða. Fyrir ofvirkan Vata huga er hugleiðsla ein besta leiðin til að finna ró og kyrrð. Þær gleðifréttir bárust okkur nýlega að 22% landsmanna hafa hugleiðslu inn í lífi sínu. Það eru í raun stór tíðindi. eru farnir að hugleiða.

STEINEFNI, OLÍUR og auðvitað D-vítamín

Bættu við vítamínum á borð við omega 3 ríkum olíum steinfefnum og B12 sem geta hjálpað þér að rétta úr þér og forðast líkamlega pirringin. Og talandi um að fá inn smá hita í kroppinn, þá er talað um að járn sé aldrei mikilvægara en yfir vetrar mánuðina. Það gefur hita. Ekki þó taka inn járn nema að þú þurfir þess. Láttu mæla þig. Ákkúrat vegna þessa er neysla á kjöti meiri yfir vetrarmánuðina en aðra mánuði ársins. Ef þú er með kaldar hendur og fætur gæti líka verið gott að skoða sink og magnesíum. Sink styður að auki ónæmiskerfið, styrkir húð, er frábært fyrir hár og neglur líka. Sink þarf líka að taka inn reglulega því líkaminn safnar því ekki upp.

Magnesíum er að finna um allan líkamann í frumum þínum, vöðvum, beinum, vefjum og fleiru. Það er nauðsynlegt fyrir líkamsstarfsemina og styður við hundruð efnahvarfa í líkamanum. Magnesíum hefur verið tengt svo mörgu m.a. lægri blóðsykri, bættri hjartaheilsu og betri frammistöðu í líkamsrækt. Jafnvel þó að það sé mikið af magnesíum ríkum matvælum í boði í dag er all ekki víst að þú fáir nóg.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing