Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Ayurveda

Gleðilegt kapha tímabil! Nú er tími faðmlaga, kærleiks og samkenndar en líka þurrar húðar og kvefs!

Vorið er handan hornsins. Nýtt upphaf. Endurfæðing, segja margir. Frost að fara úr jörðu og fræin undirbúa komu sína. Á meðan þetta ástand varir er jörðin þung og blaut og þannig verður hún í fáeinar vikur í viðbót. Það er því ekki af ástæðulausu að vorhreinsun í víðasta skilningi þess orðs er mörgum hugleikin með hækkandi sól.

Þessi mót veturs og vors eru að mörgu leyti dásamlegur tími. Tilhlökkun liggur í loftinu. Þó er ekki víst að orka allra sé upp á sitt allra besta. Þegar horft er til þess að manneskjan er hluti af náttúrunni finna margir einmitt fyrir bjúg og þreytu og sumir miklu orkuleysi. Líkt og jörðin erum við þurr og svolítið grá að utan en blaut að innan. Þetta er ástæðan fyrir því að margar menningarþjóðir kjósa að huga sérstaklega að meltingunni á sama tíma og jörðin er að hreinsa sig og vakna til lífsins.Þetta tímabil kallast kapha í indversku lífsvísindum, Ayurveda, á meðan sumarið er að mestu pitta (eldur og vatn) og haust/vetur vata (loft og eter). Að mæta vorinu /kapha orkunni í góðu jafnvægi er líklega ein dásamlegasta orkan (komum að því á eftir) en þegar kapha, sem vel að merkja býr í okkur öllum, er ekki í jafvægi getum við orðið pirruð, þung og hæg (og með lélegan meltingareld).

Hvað bera að hafa í huga á vorin þegar kapha eykst í náttúrunni og okkur sjálfum?

Kaphan orkan er allt í senn mjúk, svöl, stöðug, hæg, þung og olíu- og slímkennd frá náttúrunnar hendi. Á meðan margt af þessu eru mjög eftirsóknarvert getur annað reynst krefjandi. Þessi eiginleikar geta birst með margvíslegum hætti í náttúrunni og líka í líkama og sál hverrar manneskju. Sumir af erfiðari þáttum kapha tímabilsins getur falið í sér þunga tilfinningu, svefnhöfgi og í lága lífsorku. Birting kapha orkunnar er þó mismunandi í okkur flestum og á meðan sumum finnst gaman að vinna með vororkuna finnst öðrum hún nær óyfirstíganleg.

Tilfinningar sem fylgja kapha geta nefnilega verið áhyggjur, uppnám og jafnvel sár móðgunartilfinning. En í hina röndina er að kapha orkan okkur mjög mikilvæg og stór þáttur að vellíðan okkar. Kapha í sinni fegurstu og bestu mynd byggir okkur upp, færir líkamanum mýkt og okkur myndi sannarlega skorta samúð og ljúfleika ef ekki væri fyrir kapha / vororkuna. Okkur myndi jafnframt vanta tilfinningu fyrir jarðtengingu, stöðugleika og sannri nærveru í lífi okkar. Við myndum missa af miklu. Þannig að það er mjög mikilvægt fyrir okkur að gefa kapha orkunni gaum og koma henni í jafnvægi sem allra fyrst.

Gjafir kapha í jafnvægi eru kærleikur og samkennd

Fólk sem er sterkt kapha að líkams /hugargerð er jafnan fólkið sem er í góðu jafnvægi og mjög kærleiksríkt. Það býður kærkomin faðmlög sem er um leið grunnurinn til að jarðtengja vata orkuna og mýkja pitta orkuna. Flestir dýrka þessi faðmlög og kærleikann sem ósar af þessu hlýja fólki. Þetta er fólkið sem opnar heimili sín fyrir öllum og gerir ekki upp á milli fólks. Kapha er elementið þar sem þokkinn býr og flestir væru til í að bera.

Annað er að kapha (aftur í sínu besta formi) er traust. Kapha hefur sterkan strúktur og gefur okkur form, eins t.d. byggingu líkamans. Kapha er formið. Án kapha orkunnar í veröldinni myndi allt fljóta. Í samkiptum er enginn tryggari en kapha sem er raunverulegur vinur. Þegar kapha opnar sig þá er það vinátta fyrir lífstíð. Kapha er öguð. Hún fyrirgefur. Það skiptir líka öllu að kapha elementið gefur okkur smurningu, hún er mænuvökvinn og nærir heilann. Kapha er djúsinn sem gerir okkur ungleg og slímhúðin sem verndar meltingaveginn. Líkt og jörðin fyrirgefur hún allt og að sjálfsögðu er sá sem er með mikið kapha mesti náttúruunnandinn. Ef þú ert að halda í gremju og getur ekki sleppt skaltu reyna að finna besta kaphað í þér og fyrirgefa.

Hvernig er gott að ná kapha í jafnvægi

Núna er tíminn til að taka fallega á móti kapha orkunni / vorinu, sem er þessi sæti blettur í okkur öllum. Það getur verið í formi örvandi athafna og hreyfingar en líka með því að hreinsa líkamann og borða létta fæðu. Umskipti hafa átt sér stað. Vetrarfæðan hentar ekki lengur. Við þurfum líka að muna eftir því að halda líkama okkar heitum, þurrum og mjúkum. Til þess er hægt að nota t.d. allskyns jurtir sem eru sterkar, beiskar og herpandi og rífa sig í gegnum kerfið og örva það. Um leið er lag að minnka sætu, salt og súrt (sjá brögðin sex í Ayurveda). Græn fæða og grænt duft er ákkurat málið núna.  En einnig Digestive Aid og HCL fyrir betri meltingareld.

Allt sem þú þarft að gera á þessum tíma árs er að koma kapha-nu í þér í jafnvægi og lifa þannig í sátt og takti við náttúrna. Það sem kemur t.d. í veg fyrir að kapha sé of blaut á þessum tíma árs eru þurrar og herpandi jurtir eins og túrmerik og engifer sem sem draga úr bjúg og slími í líkamanum og fá sér pippali, svartan pipar og græna fæðu sem örva meltinguna. Jurtablöndur sem geta reynst sérlega hjálplegar á þessum tíma árs eru triphala, sem er hin milda hreinsun, tulsi eða black seed olía sem losar slím úr lungum. Þá er gott að þurrbursta húðina sem aldrei fyrr og ef húðin á þér eins og þurrt gras er frábært að bera á sig olíu. Hresstu sogæðakerfið eins og þú mögulega getur og hreyfðu við vökvum líkamans. Mundu líka að faðma fólk, sem má núna og ræka í þér það besta.

Í stuttu máli: Það sem heldur kapha í góðu jafnvægi eru meira og minna öll fæða sem er beisk, sæt, samandragandi og súr (í hófi). Það sem kemur kapha úr jafnvægi er of mikið sætt og of þungur og einhæfur matur.

Gleðilegt kapha tímabil.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing