Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Heilsan

HEIMA BAÐDEKUR og allar græjurnar sem framkalla gæsahúð frá toppi til táar

Áhugi á alvöru baðdekri fer ört vaxandi sem má fullyrða að það sé það allra ferskasta í íslenskum baðkúltúr. Allskonar sögum fer af baðmenningu Íslendinga en líka af Íslendingum sem ekki böðuðu sig. Snorri spann silfurþráð í heitri laug, Jónas frá Hriflu lét byggja laugar yfir okkur (og þjóðin lærði sundtökin) og í mjög stuttu máli, þá bættist við hver útilaugin af annarri og heiti potturinn (að hætti Snorra) varð til. Nú er laug ekki með laugum nema að hún nefnist baðlón. En áhugaverðast er að sjórinn hefur sjaldan verið vinsælli.

Nú er það heimabaðdekrið sem blívur. Heilsulindarupplifun heima með öllu sem til þarf er kannski löngu tímabær upplifun.

Fyrsta reglan í góðu baðdekri er að koma sér vel fyrir inn á baðherbergi (eða baðlóninu) og skapa notalegt andrúmsloft, jafnvel með kertum, reykelsi, tónlist og tilheyrandi. Og ekki síst; hafa allar baðgræjur innan seilingar. Jú, og góðar lífrænar nuddolíur (mælum með Fushi lífrænu olíunum  og/ eða lífrænu Skin Repair frá Virdian), skipta höfuðmáli. Þær eru næringarrík fæða fyrir húðina og halda okkur í raun ungum.

Við systur mælum möglunarlaust með Hydréa London baðgræjunum enda búnar horfa til þeirra í mörg ár og sjá þær sópa til sín verðlaunum fyrir vandvirkni og umhverfisvitund.

Lykilatriði þegar um heilsulindarupplifun er að ræða er að byrja á að bursta líkamann hátt og lágt. Gerðu eins og almennt er ráðlagt, byrjaðu á fótunum (og

Vissir þú að 10 mín líkamsnudd með þurrbursta jafnast á við 5 mílna göngu, segir við þessa mynd.

iljunum líka) og nuddaðu uppeftir líkamanum í hringlaga hreyfingum. Notaðu báðar hendur.  Sumir vilja halda þvi fram að 10 mínútna kröftugt líkamsnudd með góðum húðbursta samsvari 5 mílna skokki (1 míla = 1, 6 km).

Hér er allt sem til þarf:

FYRIR BAÐ / STURTU

Veldu líkamsbursta sem þér hentar.

Sumir vilja harða bursta, aðrir mýkri. Fyrir þá sem kjósa harða bursta er spurning um góðan gufubaðsbursta sem hefur hörkustigið 4 af 5 mögulegum. Við mælum með gufubaðsbursta sem er þakin þéttum kaktushárum og er tilvalin fyrir reyndari notendur sem vilja djúpa þurrburstun.

Annar bursti til að kynnast mögulega hinni fullkomnu þurrburstun er sá allra harðasti. Með hörkustigið er 5 af 5 mögulegum. Vel hannaður, fallegur, umhverfisvænn og með 100% náttúrulegum kaktus hárum. Mjög hressandi bursti og ekki af ástæðulausu sá allra vinsælasti frá Hydréa. Hér fer því saman djúsí þurrburstun og hámarks árangur.

Þriðji kosturinn í stöðunni er að notast við detox líkamsbursta sem er hugsaður fyrir nærandi húðhreinsun og þykir góður til að vinna gegn appelsínuhúð (með hörkustig 4 af 5). Burstinn er þakinn sveigjanlegum gúmmítotum til að draga úr spennu og fer djúpt.

Fjórði kosturinn er að velja bursta sem hefur hörkustigið 2 af 5. Hann er fullkominn fyrir byrjendur vegna mýkri háranna en er þó með stinnari hárum sem skorin eru þannig að þau mynda mjúkar en um leið árangursríkar strokur yfir útlínur líkamans. Þannig fer saman hámarksárangur og þægindi. Bursta sem þennan er hægt að fá líka með lausu handfangi. Þannig að hægt er að taka af skaftið ef þörf er á öflugri burstun. Ef þú kýst algera mýkt má nota þessa tegund ofan í baðinu í staðinn fyrir að þurrbursta.

Fimmti kosturinn er að nota nuddhanska eða nuddvettlinga sem er nokkuð mýkri leið. T.d. er blandan kopar og lífræn bómull frábær fyrir þá sem safna upp mikilli mjólkursýru vegna streitu og eða mikilla æfinga. Kopar er frumlegt og skemmtilegt efni sem eykur teygjanleika húðar.

Talandi um kopar. Stjarnan í bransanum er kopar líkamsbursti. Leyndardómurinn á bakvið geislandi og slétta og fallega húð býr í hinum undursamlegu fornu vísindum. Kopar glow líkamsburstinn frá Hydréa London er einstaklega vandaður enda unninn úr alvöru kopar. Kopar er þekktur fyrir að draga úr bólgum og jafna sýrustig líkamans. Frábær bursti fyrir þurrburstun sem gefur náttúrulega orku og bæði endurnýjar og endurnærir húð/líkama og anda.

Nú þegar orðinn að glóandi goðsögn í húðumhirðu. Skoða HÉR:

BAKIÐ

Það getur verið erfitt að teygja sig með burstann aftur á bak nema handfangið sé óralangt. Þess vegna fundu Japanir upp sisal nuddrenningin sem er ekki bara mögnuð græja, heldur getur valdið góðri gæsahúð. Sisal trefjar eru unnar úr laufum agave plöntunnar og svo sveigjanlegar og náttúrulega grófar að þær veita nærandi djúphreinsun fyrir bakið, svo straumar berast um allan líkamann. Svona renningur er í raun góður fyrir öll erfiðari svæði líkamans, eins og axlir bak og aftan á lærum.

Í BAÐINU

Það er ekki víst að allir nenni að fara í hörku hárþvott. Hvíldin er aðalmálið þegar í baðið er komið. Þá um að gera að skella á sig baðhandklæði/túrban og hafa góða augnhvílu innan seilingar. Hydréa fyrirtækið á einmitt augnhvíluna sem kjörin ein af þeim allra bestu enda lungamjúk og lagar sig að augnsvæðinu. Og að sjálfsögðu má hún blotna.

ANDLIT

Gott andlitsnudd er ómissandi hluti af baðdekrinu. Mild náttúruleg hárin í Hydréa andlitsburstanum fara mjúklega um andlit þitt og skilur húðina eftir glóandi ferska og fagra. Nú eða góðu Gua Sha eða Kansa sem gerir upplifunina dýpri. Skoðaðu marga möguleika HÉR.

FÆTUR & HENDUR

naglaburstiEftir notalegt bað jafnast fátt á við frábæra fótaþjöl og naglabursta sem virkar. Fótaþjöl, sem hefur yfirborð keramik kristalla og virkar á sprungna hæla, gefur mýkt og eykur blóðrás. Naglaburstinn er svo kapítali út af fyrir sig. Á síðasta ári var einmitt naglaburstinn frá Hydréa London valinn eitt af heilsutrendum haustins í Vouge. Það er ekki síst vegna þess að hann býr yfir smáum hornpensli til að þrífa vel neglur og naglabönd, sem kemur sé vel eftir mikla sprittnotkun undanfarið. Notaðu olíu með.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA ALLAR HELSTU BAÐDEKURVÖRUR SYSTRASAMLAGSINS.

HÉR ER GÓÐ GREIN UM SJÁLFSNUDD.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing