Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Ayurveda

Hvernig getum við verið unglegri lengur?

Húð okk­ar og bein eru það sem birt­ist okk­ur þegar við horf­um í speg­il og líka það sem kynn­ir okk­ur fyr­ir heim­in­um. Öll erum við gang­andi dæmi um áferð húðar, húðlit, lög­un og stærð. Með okk­ar ein­stöku ásynd og lík­ama sem tjá­ir að mörgu leyti hver, eða í það minnsta, hvernig við erum.

Vissuð þið að það eru húðin og bein­vef­irn­ir sem næra horm­óna okk­ar og halda okk­ur ung­leg­um? Þeir styðja við lík­ams­stöðu okk­ar svo við get­um staðið upp­rétt og vernda getu tauga­kerf­is­ins til að taka við snert­ingu og bregðast við áreiti.

Það er hollt og líka lær­dóms­ríkt að horfa á þessa mik­il­vægu þætti frá öðru sjón­ar­horni en við erum vön. Eitt af und­ir­stöðuatriðum ayur­veda­fræðanna bygg­ir á því hvernig þessi 5000 ára gömlu fræði flokka vefi lík­am­ans í sjö tals­ins, þekkt und­ir „seven dhat­us“, sem þó ná að taka á öllu því sama og Vest­rænu vís­ind­in og gott bet­ur. Alltaf þó með heild­rænni nálg­un.

Vef­irn­ir sem sjá um upp­bygg­ingu lík­am­ans hafa núm­er­in fjög­ur og fimm. Fyrstu þrír vef­irn­ir tengj­ast sogæðum (rasa), blóði (meda) og vöðvum (mamsa). Fjórði vef­ur­inn (meda dhatu) er húð og fitu­lagið og fimmti vef­ur­inn (ast­hi dhatu) teng­ist bein­um. Vef­ur sex (maj­ja) teng­ist taug­um og sjö­undi vef­ur­inn (shukra) æxl­un­ar­fær­um okk­ar.

En höld­um okk­ur við húð og bein, eða bygg­ing­ar­efni lík­am­ans (4 og 5 vef), sem eru samof­in­ir fitu­vefj­um úr fitu­frum­um. Í þess­um fitu­frum­um geym­um við orku, viðhöld­um ljóma og vinn­um með til­finn­ing­ar okk­ar. Það er svo kolla­gen sem bind­ur efni húðar og beina sam­an, eða sam­ein­ar smurðu fitu­frum­urn­ar svo og úr verður band­vef­ur, sem fest­ir þá við bein og gef­ur liðunum þessi gúmmíbands­líku liðbönd. Húðin og bein­in eru svo mik­il­væg fyr­ir al­menna heilsu og „hönn­un“ ásýnd­ar okk­ar að það er vel þess virði að skoða þau sér­stak­lega með aug­um ayur­veda til að sjá hvernig við get­um stuðlað bet­ur að vellíðan og heilsu okk­ar.

Meda Dhatu: fitu­vef­ur­inn

Meda dhatu, eða 4 vef­ur­inn vís­ar til fitu­frumna lík­am­ans sem mynda húðlög­in okk­ar. Þau sem eru hönnuð til að vernda okk­ur. Orðið „meda“ þýðir að smyrja (það er alltaf nauðsyn­legt að smyrja lík­amann), kjarni og það að veita viðspyrnu. Fitu­frum­ur eru einnig til staðar í vöðvum, mýel­íns­líðri taug­anna, í kring­um hvert líf­færi og þær um­lykja alla sjö innkirtla okk­ar. Meda dhatu held­ur okk­ur ró­leg­um, köld­um og upp­tekn­um. Þetta er vef­ur­inn sem veit­ir okk­ur líka nauðsyn­lega smurn­ingu og frelsi til að hreyfa okk­ur. Meda dhatu er lyk­il­vef­ur fyr­ir tauga­boðefni sem búa til skynj­un svo við finn­um og upp­lif­um heim­inn í kring­um okk­ur.

Húð okk­ar vernd­ar okk­ur fyr­ir um­hverf­inu með sín­um svita­hol­um, svo innri lík­ami okk­ar geti andað. Þær eru vissu­lega líka til þess gerðar að hreinsa úr­gang eins og mjólk­ur­sýru, um­fram fitu og svita. Það er mik­il­vægt fyr­ir okk­ur að vita að svita­hol­ur okk­ar geta einnig tekið upp eit­ur­efni úr um­hverf­inu – bakt­erí­ur og allskyns meng­andi efni – þar sem þær eru gegnd­ræp­ar. Þetta þýðir að húðsjúk­dóm­ur get­ur hvort sem er orðið til að inn­an og brot­ist út eða utan frá og brot­ist inn. Enn og aft­ur smurn­ing og vernd húðar er afar mik­il­væg.

Ast­hi Dhatu: Beina­grind­ar­vef­ur­inn

Ast­hi eða 5 vef­ur­inn er dregið af orðinu „stha“ sem þýðir að standa hátt. Bein­in gera okk­ur kleift að halla, snúa, beygja og jafn­vel að hringa okk­ur sam­an í bolta.

Ásamt bein­um eru hár, negl­ur og tenn­ur einnig mynduð af ast­hi dhatu (með nokkr­um flókn­ari und­ir­vefj­um þó). Heilsa þeirra er háð fljót­andi nær­ing­ar­efn­um sem ber­ast frá sogæðum, blóði, vöðvum og húðlög­um.

Ast­hi dhatu er þó meira en bara bygg­ing­ar­trefjar. Þar býr kjarni okk­ar, eða það sem teng­ir okk­ur við for­mæður okk­ar og feður. Því inn í bein­um okk­ar, tryggt þægi­lega inn­an í bein­mergn­um, búa RNA og DNA okk­ar. Þarna er lífreynsla geymd sem stuðlar að sí­breyti­leg­um erfðakóða okk­ar. Jafn­vel þétt­asta bein byrj­ar sem mjúkt brjósk. Þarna býr það sem get­ur gert okk­ur heil­brigðari og ham­ingju­sam­ari með hverj­um deg­in­um og frá kyn­slóð til kyn­slóðar.

Merki um heil­brigði húðar og beina

Þar sem þess­ir vef­ir eru á marg­an hátt sýni­leg­ir með ber­um aug­um er hægt að gera sér grein fyr­ir ástandi þeirra. Ein­fald­lega með því að gefa því gaum. Til dæm­is eru skýrt yf­ir­bragð, jöfn húðáferð, slétt­ar og hrein­ar svita­hol­ur og heil­brigður ljómi allt til merk­is um heil­brigt meda dhatu. En líka jafn­vægi í þyngd (hvorki of né van), slak­ur kviður (ekki spennt­ur) og hæfi­leik­inn til að svitna þegar við hreyf­um okk­ur. Í þessi til­liti er fróðlegt að rifja upp OJAS lík­am­ans eða það sem held­ur okk­ur ung­um.

En hvað ast­hi dhatu varðar, þá er hægt að þekkja heil­brigðan bein­vef á sterkri lík­ams­stöðu, góðri beinþéttni og get­unni til að hreyfa sig af styrk og snerpu. Sterk­ar tenn­ur, slétt­ar negl­ur og heil­brigt hár eru gjarn­an merki um heil­brigð bein.

Hér er vit að staldra við dój­urn­ar þrjár; vata, pitta og kapha og skoða á hvern hátt þær birt­ast í tengsl­um við húð og bein. Því þar eru held­ur bet­ur að finna ráðin til að halda góðu jafn­vægi.

Vata í vefj­un­um sem er eitt al­geng­asta ójafn­vægið

Merki um of mikið vata í húðinni (sem við öll get­um verið hald­in, sama hver við erum í grunn­inn) er húð sem eld­ist um ald­ur fram, þurr húð, sprung­in húð, hreistruð húð, skort­ur á blóðflæði og ljóma, mar­blett­ir koma auðveld­lega, þurr hár­svörður, dökk­ir blett­ir og kald­ar hend­ur og fæt­ur, auk viðkvæmra tauga.

Merki um vata­ó­jafn­vægi í bein­um: Stíf­leiki, sprungn­ir liðir, veik eða brot­hætt bein, þunnt eða brot­hætt hár, rend­ur í nögl­um, viðkvæmni fyr­ir snert­ingu og hljóði.

Finndu jafn­vægi: Sjálfsnudd/ Ab­hyanga (er lang besta meðalið): Stundaðu sjálfsnudd með vandaðri líf­rænni lík­ams­ol­íu sem inni­halda jurtir sem næra húðina. Má líka vera hrein ses­am eða – möndl­u­olía. Þetta er mjög mik­il­væg aðferð sem í raun nær­ir alla sjö vefi lík­am­ans. Gott að gera að minnsta kosti 4 x í viku. Góð húðburst­un og nátt­úru­leg­ur saltskrúbb­ur koma líka að góðu gagni.

Nær­ing: Vandað kolla­gen, prótein og hyaluronic sýra, eða mat­ur sem geym­ir mikið af þess­um efn­um, er málið og líka inn­taka góðrar olíu. Allt þetta ger­ir okk­ur ung­legri. Það er til dæm­is mikið magn bæði af kolla­geni og hyl­aronic sýru í beinaseyði. Og haldið ykk­ur fast því kart­öfl­ur og sæt­ar kart­öfl­ur eru eitt hyl­aronic rík­asta græn­metið sem völ er á, sem og hrein­ar soja­af­urðir.

Jurtir: Drekkið hlýja, end­ur­nær­andi jurta­drykki til dæm­is með möndl­um, döðlum og kar­dimomm­um. Ashwg­andha er ein frá­bærra jurta sem hent­ar vel þeim sem eru í vata­ó­jafn­vægi.

Pitta í vefj­um

Merki um pitta­ó­jafn­vægi í húðinni: Roði í húð, ert­ing í húð, út­brot, viðkvæm eða pirruð húð, mik­il svita­mynd­un.

Merki um pitta­ó­jafn­vægi í bein­um: Óþæg­indi í liðum, viðkvæmni fyr­ir meiðslum, viðkvæm­ar tenn­ur, rautt eða pirrað tann­hold, feitt hár og ljós­næmi.

Finndu jafn­vægi: Sjálfsnudd/ Ab­hyanga: Notaðu kæl­andi olíu til sjálfsnudds. Sú best þekkta er líf­ræn kó­kosol­ía. Hún er alls ekki fyr­ir alla en er mjög gagn­leg þeim sem glíma við pitta­ó­jafn­vægi og eru með of mik­inn hita í lík­am­an­um. Það er líka til gagns að fara í ep­somsalt bað með haframjöli sem róar húð og tauga­kerfi.

Nær­ing: Drekktu til dæm­is aloe vera safa til að róa um­fram hita.

Jurtir: Drekktu ró­andi, kæl­andi te eins og myntu te og CCF, blanda af kórí­and­er, fenn­el og kúmíni hent­ar alltaf, raun­ar öll­um lík­ams­gerðum.

Kapha í vefj­um

Merki um of mikið af kapha í húðinni: Bjúg­ur safn­ast fyr­ir, bólg­in augu, húðþurrk­ur, ofþyngd, svitna ekki við áreynslu, fitu­söfn­un á sér­stök­um svæðum lík­am­ans, stíflaðar svita­hol­ur, mar­blett­ir koma auðveld­lega.

Merki um of mikið af kapha í bein­um: Stækk­un beina, upp­söfn­un kalks, tann­steinn, viðkvæmni fyr­ir breyt­ing­um, bragði og lykt.

Finndu jafn­vægi með: Sjálfsnudd/ Ab­hyanga: Notaðu hita­gef­andi og líf­ræna olíu með góðum jurt­um til að verma og end­ur­ræsa lík­amann og næra djúpt inn í vefi hans. Annað ráð er að þurr­bursta húðina hressi­lega og/​eða notaða saltskrúbb til að hreinsa húðina. Hér betra að þurr­bursta oft­ar og nota olíu sjaldn­ar.

Sviti: Það er mjög mjög mik­il­vægt fyr­ir þá sem eru kapha ójafn­vægi að ná að svitna reglu­lega með hreyf­ingu og /eða sauna og gufubaði.

Jurtir: Drekktu hreins­andi og öfl­ug jurta­te.

EfniAyurvedaAyurvedaJurtirNuddOlíur
Allir pistlar
Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing