Hér kemur klassískur morgunverðargrautur fyrir þá sem vilja fara lauflétt inn í daginn.
Ávextir, eins og epli, eru mun auðmeltari þegar þeir eru soðnir, sérstaklega þegar heldur kalt er úti. Það að byrja morguninn á steiktu epli byggir upp matarlyst fyrir hádegismatinn, örvar hægðir, eykur orku og er um leið seðjandi og nærandi.
Eplagautur sem þessi er fyrir þá sem vilja taka mýktina með sér inn í daginn.
Fyrir þá sem vilja eitthvað aðeins meira er grauturinn góður ofan á hafragrautinn.
Grautur fyrir einn:
1 ferskt og lífrænt epli
5 negulnaglar
1/2 tsk kanill
1/4 bolli vatn
1 stjörnuanís
Aðferð:
Skerið eplið í báta og aftur í tvennt ef þú hefur nauman tíma.
Settu eplið, vatn, kanil, negul og stjörnuanís, eða allt, í lítinn pott. Setjið lok á og látið malla í 5 mínútur, þar til eplið er orðið meyrt en gætið þess að það sé ekki alveg þurrt. Bætið við skvettu af vatni, ef þarf.
Berið fram og njótið bragðsins og einfaldleikans. Ef vökvi situr eftir sötrið hann endilega, því hann er sérlega bragðgóður.
Nokkur aukaráð:
Ef þú ert mjög viðkvæm/ur/t í meltingunni er gott að skræla eplið. Annars alger óþarfi, ef þú ert með mjög gott lífrænt epli.
Ef þú ert er með mikil blóðsykursvandamál er betra að sleppa þessum rétti. Ráð fyrir þá sem eru ekki eru ekki að eiga við mikið blóðsykursflökt en vilja halda góðum balans er að borða nokkrar möndlur eða möndlusmjör.
Annars njótið.




