Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Almennt

Lukkuskeifur og útsaumsverk – sýning Thelmu Bjarkar stendur yfir í Systrasamlaginu

Okkar kona, Thelma Björk, hönnuður og hugleiðslukona með meiru, er sískapandi listakona. Að undanförnu hefur hún m.a.hannað lukkuskeifur sem við fáum nú að njóta í Systrasamlaginu.

Innblásturinn af verkum sínum sótti Thelma í vel notaðar og “reynslumiklar” hestaskeifur úr fórum föður síns. Þær parar hún saman við hluti sem komu til hennar á Parísarárunum en einnig frá ömmu hennar og vinum og af mörkuðum um allan heim. Útkoman er dásamlega skemmtileg og fögur verk sem munu hanga sýnis í Sysrasamlaginu yfir myrkustu mánuði ársins.

Hver og ein skeifa táknar ákveðna kafla í lífi Thelmu og segir hún að allar snúi þær niður líkt og “halo” svo lukku geti ringt yfir hana sem og framtíðareigendur þeirra. Enda kallar Thelma þessi verk sín lukkuskeifurnar.

Að auki fáum að sjá platta með gömlum útsaumi sem Thelma saumar í og yfir með demantssporum sem amma hennar kenndi henni. Þeim gefur Thelma sérstaka kossa og blessun.

Öll verk Thelmu í Systrasamlaginu eru til sölu.

Sjón er sögu ríkari.
Sjáumst í Systrasamlaginu.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing