Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Heilsan

MAGNAÐAR HREINLÆTISVÖRUR SEM VEKJA GÓÐGERLA AFTUR TIL LÍFSINS -systur eru að breyta heiminum

Dönsku Byoms “systurnar” eru engar venjulegar systur. Þær eru að breyta heiminum og skora á hólm notkun óþarfa bakteríudrepandi efna. Í staðinn styrkja þær heilbrigðu góðgerlanna sem eru þeirrar náttúru að berjast gegn þeim sem geta valdið skaða.

“Systurnar”, önnur verkfræðingur, hin fyrrum atvinnukona í handbolta, hafa þróað heilbrigðar og sjálfbærar hreinlætisvörur með góðgerlum fyrir þvott og þrif. Þær eru metnaðargjarnar og fylgjast grannt með rannsóknum og örri þróun á notkunarmöguleikum góðgerla. Það gerast nefnilega töfrar þegar systur vinna saman.

Rikke Stein Omby er sú sem er verkfræðingur að mennt. Með vísindalegan bakgrunn finnst henni ekkert eðlilegra en að rannsaka og prófa það sem getur skipt sköpum fyrir umhverfi okkar og loftslag.

Anja Byrial Hansen er fyrrverandi atvinnukona í handbolta og hefur unnið olympíugull í greininni. Nú setur hún allt keppnisskapið í sjálfbærni og gera heiminn betri.

Hvað þýða hreinlætisvörur með góðgerlum?

“Pro-biotics”þýðir „fyrir lífið sjálft“. Góðgerlar eru andstæða sýklalyfja (sem drepa bakteríur). Við lifum umkringd bakteríum; þær eru hluti af okkur og við af þeim. Hitt er annað mál að við getum valið um að vera umkringd góðgerlum sem kallast einmitt probiotics. Það eru lifandi örverur sem eru í sínu náttúrulega umhverfi innan sem utan líkamans. Málið er bara að virkja góðgerlanna betur. Með Byoms hreinlætisvörunum hafa dönsku systurnar kosið að nota góðgerlastrenginn bacillus coagulans. Það eru mjög öflugir góðgerlaþræðir sem lifa í dvala í því harkalega umhverfi sem þvottaefni eru en hér eru þeir vaktir til lífsins til að vinna þarft verk.

Heimilisgóðgerlarnir Skaðlegar bakteríur finnast í hverju horni heimilis okkar. Þetta eru bakteríurnar sem gefa frá sér vonda lykt og hafa slæm áhrif á heilsu okkar. Með reglulegum þvotti og hreinsun reynum við að losa okkur við þær. En því miður, þær koma alltaf til baka.

Þrif með góðgerlum Þegar þú þrífur með efnum sem innihalda góðgerla dreifast þessar vinalegu og góðu bakteríurnar á yfirborðið og baráttan við þær slæmu hefst. Góðgerlar elska óhreinindi, svita ofl og magnast fljótt upp og yfirtaka partýið, ef svo má að orði komast. Það má vel kalla þetta góða yfirtöku (ekki fjandsamlega).En ekki nóg með það, þá fara góður bakteríurnar djúpt undir yfirborðið og hreinsa það líka.

Virka í allt að 8 daga Góðgerlarnir halda áfram baráttu sinni í allt að 8 daga eftir að þeim er dreift / úðað út í andrúmsloftið ! Rétt eins og “probiotísk” fæðubótarefni, góðgerlar, sem halda maganum í jafnvægi, munu góðgerlarnir í Byoms hreinlætislínunni halda heimili þínu í jafnvægi og / eða íþróttatöskunni lyktar og óhreininda. Góðgerlarnir í Byoms ráðast með fullum þunga á lykt, fitu og óhreinindi, en passa vel upp á börnin okkar og jörðina.

Hvers vegna góðgerla hreinsun? Góðgerlar endurheimta náttúrulegt örveru jafnvægi og skapa heilbrigt örveru umhverfi sem er er manneskjunni afar hliðhollt. Þeir vernda okkur gegn útbreiðslu skaðlegra baktería og tryggja allt að 8 daga vernd. Eftir að hafa þvegið fatnað eða yfirborð gólfs, baðs, veggja, búsáhalda eða jafnvel útiviðsins og/eða frískað andrúmsloftið með þar til gerðri Byoms vöru fara góðgerlarnir strax í góðan fíling. Þeir vakna til lífsins og byrja að fjölga sér á broti úr sekúndu. Á innan við klukkustund þekja góðgerlanir allt yfirborðið og skilja ekkert pláss eftir fyrir aðrar bakteríur /örverur (t.d. sjúkdómsvaldandi og smitandi bakteríur). Sigur góðgerlanna er vís.

Frá hinum dönsku Byoms systrum hafa allskonar magnaðar hreinlætis vörur litið dagsins ljós. Má þar nefna frábæran baðhreinsi, þvottatríó fyrir allskyns þvott, gólsápu, viðarhreinsi, alhliða, lyktareyði, allt með góðgerlum (sem halda áfram að vinna í 8 daga, mumiði) og svo mætti áfram telja.

Byoms systur eru ekki bara komnar skrefi lengra. Þær eru hetjur.

 

SKOÐA BYOMS Í SYSTRASAMLAGINU

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing