Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Heilsan

Kveiktu upp í meltingareldinum. MELTINGIN & HAMINGJAN. Magasýra, mjólkurþistill og meltingarensím

„Ham­ingj­an felst í góðum banka­reikn­ingi, góðum kokki og góðri melt­ingu,“ sagði heim­spek­ing­ur­inn Jean-Jacqu­es Rous­seau þegar hann horfði yfir sviðið. Nú eru jólahátíðin…

Ham­ingj­an felst í góðum banka­reikn­ingi, góðum kokki og góðri melt­ingu,“ sagði heim­spek­ing­ur­inn Jean-Jacqu­es Rous­seau þegar hann horfði yfir sviðið. Nú eru jólahátíðin framundan og margar veislur í kortunum. Þá er góður mat­ur og góð melt­ing aldrei mik­il­væg­ari (ekki væri verra ef banka­reikn­ing­ur­inn er rétt­um meg­in við núllið). Hafðu heilsuna í lagi.  Því þótt heilsan sé ekki allt veit sá sem misst hefur heilsuna að lífið verður gjarnan erfiðara án hennar.

MAGASÝRA

Lág maga­sýra er svo önn­ur saga sem einnig hef­ur valdið fólki mikl­um óþæg­ind­um. Marg­ir glíma við lágt sýru­stig sem þó er til sára­ein­föld lausn við. En hvernig veistu hvort þú ert með maga­sýru­vanda­mál?

Al­gengt er að við lágt sýr­urstig finni fólk til veru­legr­ar seddu­til­finn­ing­ar eft­ir frem­ur lít­inn skammt af mat og að því finn­ist það þanið, stíflað, með melt­ing­ar­trufl­an­ir og verði viðkvæmt í maga. Lág­ar maga­sýr­ur verða mjög gjarn­an vanda­mál hjá mörg­um með aldr­in­um.

Það að taka inn t.d. blöndu af betaine-jurt og HCL (sem er maga­sýr­an) með mat nýt­ur vax­andi vin­sælda. Það hækk­ar nátt­úru­leg­ar maga­sýr­ur sem get­ur gert gæfumun­inn fyr­ir melt­ing­una. Prófaðu að taka inn HCL með mat og þú veist svo gott sem sam­stund­is hvort það virk­ar fyr­ir þig.

Í gegn­um tíðina hafa ýmis jurta­extrökt verið notuð til að lina þessi ein­kenni. Eitt þeirra sem virkað hef­ur hvað best er ein­mitt áður­nefnd genatian-rót (Gentiana lutea). Marg­ar rann­sókn­ir styðja að hún hjálp­ar mikið. M.a. sýndi þýsk rann­sókn fram á það að það að taka inn þykkni af gentian-rót í 15 daga dreg­ur úr melt­ingaróþæg­ind­um um 68%. Góð blanda HCL og betaine gæti verið góð lausn.

MJÓLKURÞISTILL

Mjólk­urþistill er ansi mögnuð jurt sem hef­ur öfl­uga andoxun­ar­virkni. Hann er sann­ar­lega tal­inn styrkja starfs­semi lifr­ar­inn­ar og hafa góð áhrif á kó­lester­ól­jafn­vægið. 2000 ára saga um nokt­un mjólk­urþistils til að meðhöndla vanda­mál í lif­ur og gall­blöðru seg­ir sína sögu. Mjólk­urþistill hreins­ar bæði og vernd­ar og er af flest­um tal­in besta fá­an­lega nær­ing­in fyr­ir lif­ur. En þrátt fyr­ir langa sögu var það samt ekki fyrr en á 8. ára­tugn­um að vís­inda­menn fóru að rann­saka mjólkuþistil­inn að gagni. Mjólk­urþistill er ein af fáum jurt­um sem á sér ekk­ert jafn­gildi úr heimi hefðbund­inna lyfja.

Virku efn­in í mjólk­urþistli eru 4 og þekkt und­ir sam­heit­inu silym­ar­in og virka einnig á fjóra mis­mun­andi vegu. Þau eru andoxandi, gera frumu­himnu og gegnd­ræpi lifr­ar­fruma stöðugri, hraða ný­mynd­un lifr­ar­fruma og hægja á mynd­un kolla­genþráða sem mynd­ast við skorpu­lif­ur. Það gef­ur því auga leið að hún gagn­ast mörg­um vel yfir hátíðirn­ar sem vilja njóta þess að borða og drekka. En sann­ar­lega líka melt­ing­ar­ensím­in­in og maga­sýr­an. Hér er mjög öflugur mjólkurþistill.

MELT­ING­AR­ENSÍM

Þegar við borðum mikið, eins og jafn­an að hausti og í aðdraganda jóla, er mjög mik­il­vægt að við melt­um mat­inn al­menni­lega. Ferlið á að vera þannig að þegar þú melt­ir mat­inn leys­ast úr læðingi melt­ing­ar­ensím í smáþörm­un­um. Ensím sem hjálpa til við að brjóta niður efna­sam­bönd í matn­um og gera mat­inn smærri svo hægt sé að koma hon­um áleiðis í gegn­um melt­ing­una. Hlut­verk ensím­anna er ein­mitt að brjóta niður mat­inn til að koma í veg fyr­ir uppþembu, óþæg­indi og vind­verki í þessu ferli.

Ef fram­leiðsla melt­ing­aresníma er lít­il, eða ef þú borðar mat sem erfitt er að melta, geta mel­ing­ar­ensím­in ekki haldið í við mat­inn og margs kyns óþæg­indi koma fram. Það að tyggja mat­inn vel og borða ekki of mikið get­ur hjálpað mikið en stund­um þurf­um við auka hjálp.

Saga inn­taka á melt­ing­ar­ensím­um er löng og ör­ugg. Melt­ing­ar­ensím koma jafn­an úr græn­meti og inni­halda lípasa sem brýt­ur niður fitu, amýlasa sem brýt­ur niður kol­vetni og prótasa sem brýt­ur niður prótein. Marg­ar rann­sókn­ir styðja að melt­ing­ar­ensím draga úr vind­verkj­um og óþæg­ind­um og koma hreyf­ingu á melt­ing­una. Ef þú átt stund­um eða oft erfitt með að melta mat­inn og ert að fara að borða mat sem get­ur lagst þungt í þig er frá­bært ráð að taka melt­ing­ar­ensím með matn­um. Sá mat­ur sem oft­ast trufl­ar melt­ing­una eru mjólku­vör­ur, hveiti, lauk­ur, baun­ir, belg­baun­ir en líka mat­ur sem inni­held­ur mikla sterkju og fitu. Best er að taka melt­ing­ar­ensím með mat. Skoða Digestive Aid: 

Mælum líka með öflugum lífrænum og beiskum digestive elexír sem á sér langa sögu:

https://systrasamlagid.is/vefverslun/vitamin-baetiefni-oliur/lifraen-digestive-elexir/
Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing