Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Heilsan

MJÓLKURÞISTILL- HREINSAR LIFUR. LÍKA VIÐ SYKURSÝKI 2

Þekkt er að mjólkurþistill er öflugasta jurtin til að hreinsa lifur. Faraldsfræðilegar rannsóknir benda einnig með skýrum hætti til þess að ein einföld jurt geti hjálpað þeim sem þjást af sykursýki 2 að draga verulega úr vandamálinu. (2).

Talið er að 3,2 milljónir Breta séu með sykursýki (1). Búist er við að þeir verði 5 milljónir verði árið 2025. Meira en 5000 manns hafa verið greindir með sykursýki 2 hér á landi og talið er að mýmargir séu í hættu að fá sykursýki 2.

Sykursýki er langvinn blóðsykursröskun sem getur komið fram vegna margvíslegra áhættuþátta. 90% sykursjúkra eru með sykursýki af tegund 2 (T2D) sem oft er hægt að stjórna með því að breyta lífsstíl og matarvenjum. Til viðbótar við heilbrigðar breytingar hefur silymarin, virkt efnasamband sem finnast í mjólkurþistli, sýnt ávinning við meðferð T2D (2).

Faraldfræðirannsóknin (samantekt á rannsóknum) undir forystu A. Hadi et. al við læknaháskólann í Isfahan, Íran, sáu jákvæð áhrif silymarin bætiefnis á efnaskiptastöðu T2D sjúklinga (2). Alls voru sjö rannsóknir með samtals 370 þátttakendum í þessari greiningu, þar sem gefinn skammtur var á bilinu 200-600 mg/dag, í 45 daga-1 ár.

Eftir að gögnin voru rýnd kom í ljós að fæðubótarefni með silymarin lækkaði umtalsvert blóðsykur og insúlín samanborið við lyfleysu. Ennfremur kom fram lækkað lípíð í blóði, þar sem fæðubótarefni silymaríns leiddi einnig til lækkunar LDL-kólesteróls.

Talið er að sylimarin geti unnið að því að bæta efnaskiptaástand vegna þess sem er bólgueyðandi, blóðsykurslækkandi og vegna oxunarálags. Silymarin hlutleysir skaðleg sindurefni og dregur þannig úr bólgumþáttum sem geta stuðlað að sjúkdómum.

Jafnvel þótt vísindamennirnir leggi til frekari rannsóknir og vilji t.d. skoða ákjósanlegan skammt, komust þeir að þeirri niðurstöðu að silymarin bætir sannarlega heilsu og efnaskiptaástand hjá sjúklingum með sykursýki. Í heildina bætir faraldsfræðinrannsóknin við þau sönnunargögn sem styðja gagnlegt hlutverk mjólkurþistilsuppbótar á heilsu manna.

Almennt segja næringarþerapistar og jurtalæknar um mjólkurþistill, að hann beri höfuð og herðar yfir aðrar lifrajurtir. Hann bæði hreinsar og verndar og er besta fáaanlega næringin fyrir lifur. Og gagnist afar vel þeim sem eru á miklum lyfjum sem og þeim sem drekka áfengi reglulega.

Mjólkurþistillinn á sér langa hefð sem lækningajurt. Það var samt ekki fyrr en á 8. áratugnum sem vísindamenn fóru að rannsaka jurtina að gagni en mjólkurþistill er ein af fáum jurtum sem á sér ekkert jafngildi úr heimi hefðbundinna lyfja.

Virku efnin í mjólkurþistli eru 4 og þekkt undir samheitinu silymarin og virka einnig á fjóra mismunandi vegu. Þau eru andoxandi, gera frumuhimnu og gegndræpi lifrarfruma stöðugri, hraða nýmyndun lifrarfruma og hægja á myndun kollagenþráða sem myndast við skorpulifur.

HÉR ERU 2 TEGUNDIR AF MJÖG ÖFLUGUM MJÓLKURÞISTILI.

Heimildir: 1)      Diabetes UK: Facts and Figures 2)      Amir Hadi, Makan Pourmasoumi, Hamed Mohammadi et. al (2018) The effects of silymarin supplementation on metabolic status and oxidative stress in patients with type 2 diabetes mellitus: A systematic review and meta-analysis of clinical trials, Complementary Therapies in Medicine
EfniHeilsanLifurMjólkurþistill
Allir pistlar
Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing