Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Heilsan

SKIPTIR MÁLI AÐ VELJA VÍTAMÍN OG BÆTIEFNI VEL. Jóhanna í Systrasamlaginu svarar spurningum.

Jóhanna Kristjánsdóttir eigandi heilsuhofsins Systrasamlagsins er mikill reynslubolti þegar það kemur að heilsumálum. Hún stofnaði ásamt systur sinni, Systrasamlagið fyrir 11 árum, sem hún segir hafa verið mikið mikla ævintýraför. Áður hafði Jóhanna unnið í Heilsuhúsinu, svo reynslan í heilsubransanum er nú talin í meiri en 3 áratugum. 

Hvað myndir þú ráðleggja fólki í vetur? “Alltaf að tryggja grunnþörfina og svo má bæta um betur, “ svarar Jóhanna að bragði. “Það er nauðsynlegt að taka inn gott fjölvítamín með góðum B-vítamínum, D- vítamín, góðar Omega fitusýrur (hvort sem er fiskiolía eða jurtaolía) og svo góða góðgerla fyrir meltinguna því þar liggur svo stór hluti ónæmiskerfisins. Ef grunnnæringin er í lagi á líkaminn svo miklu auðveldara með að heila sig sjálfur. En þetta er allt einstaklingsbundið. Við erum með mismunandi þarfir. Þess vegna er svo gott að geta leitað sér gagnlegra upplýsinga sem t.d. hægt að gera í Systasamlaginu. 

Þú minnist á mikilvægi ónæmiskerfis? 

“Við þurfum við að næra okkur extra vel og hafa næringuna fjölbreytta. Í því tillitli skiptir máli að velja bætiefninin vel,” bætir Jóhanna við. “ Þau ættu að vera án allra fylliefna og aukaefna. Nóg er álagið á líkamann fyrir, svo hann þurfi ekki að vinna úr aukaefnunum líka,” segir Jóhanna og upplýsir um það sem skiptir máli: 

“Vítamín og bætiefnaheimurinn er æði misjafn að gæðum og stundum má setja stórt spurningamerki við öll aukaefnin sem fylgja annars ágætum vítamínum. Fylliefni eins og sykur, tíataníum díoxíð, hveiti, steric sýra og svo mætti áfram telja. Það er ágætt fyrir okkur mörg að vita að 50% af þeim töflum/vítamínum sem eru á markaðnum í dag innihalda aukaefni, lím eða bindiefni. Fyrir magra er þetta býsna dapurleg staðreynd en aðra, sem eru viðkvæmir fyrir þessum efnum, er þetta raunverulegt vandamál og getur hindrað næringarupptöku. En svona í alvöru, hver vill strá títaníum díoxíð eða steric sýru út á matinn sinn?”

D-vítamín drottningin

„Líklega heldur þó D-vítamínið að vera alfa og omega alls. D-vítamín heldur áfram að leiða hleðsluna sem topp næringarefnið fyrir heilsuna. Það gegnir lykilhlutverki í ónæmi, andlegri líðan, bein- og húðheilsu og vernd gegn langvinnum sjúkdómum. D-vítamín var mikið í fréttum þar sem ýmsar rannsóknir tengdu lágt D-vítamíngildi með aukinni hættu á fylgikvillum vírusa.“

Jóhanna bendir líka á að C-vítamín afar mikilvægt fyrir ónæmiskerfið til að verjast sýkingum. Undanfarið hefur vaknað mikill áhugi margra á að næra sig með forvarnir og almennt betri líðan í huga. Þá er mikilvægt að ítreka að C-vítamín er eitt af miklilvægustu næringarefnunum sem á stærsta þáttinn í viðspyrnu ónæmiskerfisins og hægir á öldrum og hrörnun líkamans.

Ef þú kýst að taka inn C-vítamín, sem margir ættu að gera, er mikilvægt að það sé unnið úr óerfðabreyttri fæðu. Þá fer mun betur í marga að C-vítamínið sé í fylgd fitusýra, án þess að það sé endilega “liposomal”. Því miður er mikið af liposomal C-vítamíni kemískt unnið, oft prófað á dýrum og stundum erfðabreytt. Hafðu heldur C-vítamínið náttúrulega unnið, í fylgd góðra fitusýra, án aukaefna og í öllum bænum, forðist það sem hefur verið prófað á dýrum. Þannig er C-vítamínið frá Virdian.

Sink hjálpar líkamanum að nýta betur fæðuna til orkuframleiðslu. Þetta steinefni styrkir einnig ónæmiskerfið kemur í veg fyrir að RNA vírusinn bindi sig við frumurnar Sink styrkir slímhúðina. Hér er blanda af C-vítamín og sinki í góðum hlutföllum, sem styrkir líka meltingarveginn.

Eftir miklar vangaveltur ákváðu systurnar í Systrasamlaginu að velja Viridian vítamín- og bætiefnalínuna. 

Jóhanna upplýsir um hvers vegna: 

“Það kemur aðallega til að því hversu vel sú lína er hugsuð og vönduð. Og líka vegna þess að flest þau efni sem hún inniheldur, eru ræktuð og unnin í landinu þar sem hún er framleidd, þ.e. í Bretlandi. Vidrian er í persónulegum samkiptum við sína framleiðendur hvort sem þeir eru í Bretlandi, Egyptalandi eða á Íslandi og leggur fyrir alla 130 spurningar. Viridian er að miklu leyti úr vottuðu lífrænum jurtum og þar sem þau innihalda engin fylliefni nýtist innihald þeirra 100%. Þá er frábært að segja frá því að Virdian fékk nýlega vottun sem fyrsta fyrirtækið í heiminum sem ekki notast við pálmaolíu og er margverðlaunað fyrir hreinleika og gæði. Mitt í allri umræðunni um gjörunnin matvæli má líka benda á að mikið úr vítamín og bætiefnaheimum flokkast í því miður sem gjörunnin og virka ekki, eða geta í versta falli verið skaðleg. Því er aldrei mikilvægra að hafa vítamín og bætiefni ákaflega vönduð.

Hvaða spennandi framundan í bætiefnaheiminum? 

“Hvað Virdian varðar, sem er alltaf með puttan á púlsinum, þá er Black seed olía frá þeim að slá í gegn víða og líka hér í Systrasamlaginu. Hún er mjög öflug enda lífrænt vottuð og af bestu gæðum. Lífræn silungsolían er alltaf vinsæl enda nýtist hún líkamanum mjög vel. Þá var B12 í vökvaformi að koma á markað, án aukaefna og sætuefna. 2022 lagði Virdian ríka áherslu á magnesíum í allri sinni vídd og breidd. Magnesíum kemur að 300 efnaskiptaferlum í líkamanum. Það er mikill skortur á þessu einu allra mikilvægasta efninu sem er lífsnauðsynlegt fyrir okkur. Það kemur m.a. að svefni, heila- og taugakerfi, orku, hjarta, geðheilsu og beinum og tönnum. Magnesíum er kannski einmitt það sem Virdian kallar það “Spark of life”, sjálfur lífsneistinn. 2023, er áherslan á góðgerla/ vinalega meltingagerla sem kemur ekki á óvart. Það er vegna þess að öflugar rannsóknir eru nú að sýna getu og mikilvægi góðgerla sem raunverlega geta breytt heilsu okkar til hins betra. Sú breyting byrjar í þörmunum. Þá má ekki gleyma B5, sem er að koma sterkt inn undanfarið en það vítamín (í fylgd annarra B-vítamína) getur lækkað kortisólið í líkamanum og þar með streitu. Má þar t.d. nýja blöndu frá þeim sem er blanda B-vítamína með háu B5 og C-vítamíni. Hún hefur þegar slegið í gegn enda greinilega mikil þörf fyrir hana. Í ár er áherslan á heilann og Brahmi, sú öfluga jurt, vara ársins  2024. Brami eykur afköst heilans, skerpir hugsun og námsgetu og vel vísindalega undirbyggð.

Til frekari upplýsinga má geta þess að Virdian býður upp á margar tegundir af fjölvítamínum fyrir mismunandi h ópa og þarfir. Má þar nefna sérstaka blöndu til að styrkja heilann, Brain múltí, Cardio múltí er með áherslu á hjarta og æðaheilsu og Sport múltí fyrir þá sem hreyfa sig mikið. Allar þessar blöndur og fleiri til innihalda ríkulegt magn B-vítamínum og steinefnum, þar með talið joði sem er mikið í umræðunni um þessar mundir. 

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing