Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Heilsan

NOKKRAR ÁHUGAVERÐAR STAÐREYNDIR UM TÚNFÍFIL

Fífillinn er eina blómið sem táknar 3 himintungl; sólina, tunglið og stjörnurnar.

Gula blómið líkist sólinni, knúpurinn tunglinu og fræin sem dreifast líkjast stjörnunum.

Fífilblómið heilsar með því að opna sig á á morgnana og lokast svo á kvöldin til að sofa.

Hver hluti fífilsins er gagnlegur: rótin, laufin og blómið. Blómið er hægt að nota í mat, í lyf og sem litarefni t.d. til að lita fatnað.

Allt til ársins 1800 rýmdi fólk grasflötina svo gagnlegt “illgresi”, eins og túnfífill næði að blómstra.

Nafnið túnfífill er dregið af franska orðinu „dent de lion“ sem þýðir ljónatönn, sem vísar til gróftenntu laufanna.

Túnfífill á eitt lengsta blómstrandi tímabil allra plantna.

Fífillfræ ferðast með vindhviðum, eins og örsmáar fallhlífar.

Dýr eins og fuglar, skordýr og fiðrildi neyta nektars og/ eða fræjanna af túnfífífli.

Ekki þarf að fræva blómfífil til að mynda fræ.

Fífill er hægt að nota við framleiðslu á víni og rótarbjór. Rót af túnfífli má nota í stað kaffis.

Túnfíflar eiga djúpar sögulegar rætur. Þeir voru vel þekktir meðal Egypta, Grikkja og Rómverja til forna og hafa verið notaðir í hefðbundinni kínverskri læknisfræði í mörg þúsund ár.

Túnfífill er notaður í alþýðulækningum til að meðhöndla sýkingar og lifrarsjúkdóma.

Te úr túnfífli virkar sem þvagræsilyf.

Túnfífilsrótin losar um gall, er lifrarhreinsandi og rík af steinefninu kalíum.

Túnfíflar eru líklega farsælustu plöntur veraldarsögunnar. Túnfíflar eru í raun meistarar allra blóma.

Skoða túnfífils og króköppublönduna frá Virdian.

Stuðst við grein af:
We Don’t Deserve This Planet
Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing