Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Heilsan

NÝIR LITIR FYRIR NÝJA TÍMA

Koma sumars hvetur okkur öll til að fara út á meðal fólks og sækja í létta og skemmtilega stemningu. Með það í huga kynnir Nailberry A New Era litapallettuna. Fjóra flatterandi og frábærlega seiðandi liti sem færa nýtt tvist á pastellitina; allt frá mjúkum og fölum litum til háþróaðra og poppaðra.

Andinn í A New Era safninu okkar hefur djúp tengsl við þá menningarstrauma sem eru í gangi núna. Eftir síðustu 2 ár er ljóst að við viljum brjóta af okkur gamlar og stífar venjur og gera tilraunir með nýja hugsun, hegðun og stíl. Við leitumst því við að sýna þessa skemmtilegu, frjálslyndu og áræðnu hlið á heiminum í ljósum, skærum og glæsilegum litum,“ segir Sonia Hully frumkvöðull og stofnandi Nailberry.

Tilvalin litapalletta fyrir hlýrri og rómantíska tíma. Nýju litirnir bera bráðskemmtileg heiti og nefnast: Jazz me up, Folie Duce, Flapper og Charleston (þið skynjið roaring stemmninguna).

Eins og ávallt er Nailberry án 12 skaðlegustu efnanna. Nailberry hleypir í gegn raka og súrefni. Það er vegan og þér líður alltaf vel með Nailberry á nöglunum.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing