Hér eru nokkrir punktar um hinar frábæru Fushi olíur sem fást í Systrasamlaginu. Þær eru allar lífrænar og kaldpressaðar. Af allra bestu gæðum og úr frábærri uppsprettu. Gaman er að segja frá því að það er sama orð yfir olíu og ást á Sanskrít sem er orðið snea.
-
Möndluolía: Hægir á öldrun, uppfull af andoxunarefnium, rakagefandi, bólgueyðandi og góð fyrir taugakerfið.
-
Sesamolía: Nærandi og græðandi olía, rík af E-vítamíni.
-
Castor olía: Er mjög bólgueyðandi. Frábær til að bera á magasvæði, í hár, hársvörð, augabrúnir og augnhár. Hreinsandi og endurheimtandi fitusýrurík fjölnota olía til að nota staðbundið. -
Jojoba olía: Nærir og gefur raka fyrir hár, húð, hársvörð og neglur.
-
Gulrótarolía: Verndar og gefur húðinni einstaklega fallegan náttúrulegan ljóma.
-
Melónufræ olía: Einstaklega létt en samt mjög rakagefandi olía, ofurrík af línólsýru til að auka mýkt húðarinnar og boostar hana.
-
E-vitamín olía: Endurnýjandi, nærandi og græðir húð og sár.
-
Avocado olía: Nærir hár- og húð. Einnig hægt að nota sem næringarríka olíu á mat.
-
Rosehip olía: Vinnur gegn öldrun, mjög andoxunarrík, rakagefandi og bólgueyðandi.





