Áttu erfitt með að vakna, hrynur þú í orku um miðjan dag, ertu hvíldarlaus á kvöldin og glaðvakandi þegar þú átt að sofna? Ef svo er getur gott líkamsnudd á hverjum morgni, allavega í viku eða tvær, gert gæfumuninn.
Getið er um góð áhrif daglegs sjálfsnudds undir heitinu abhyanga í hinum 5000 ára gömlu vedísku ritum. Lagt er til 15 mínútna nudd á hverjum einasta morgni (eða kvöldi) upp úr volgri eða heitri olíu. Annars vegar til að tryggja góða daglega líðan og hins vegar styður það óneitanlega við aukna núvitund og “self-compassion” eða kærleik í garð okkar sjálfra.
Mælt er með að þú nuddir þig hátt og lágt með þurrbursta sem hentar þér. Nuddaðu alltaf í átt að hjarta og síðan frá hálsi niður á bak. Því næst berðu á þig þá olíu og jurtum sem henta þinni líkamsgerð. Þannig nær hún að frásogast vel inn í líkamann. Með þessu nærðu að ná að vinda ofan af þér, nærast líkamlega og andlega, losa líkamann við uppsöfnuð eiturefni og jafnvel einnig að móta hann. Nuddið kemur jafnframt jafnvægi á dosur/orku líkamans (vata, pitta kafa), er róandi, eykur lífsþrótt, bætir svefn, dregur úr stífleika og færir húðinni ljóma. Að auki nærðu til allra líkamansparta, sem er mjög mikilvægt.
Afrakstur daglegs nudds með þurrburstun og upp úr heitri olíu:
Eykur blóðflæði, ekki síst til okkar fíngerðu taugaenda
Róar taugakerfið
Mýkir liði
Eykur núvitund
Hreinsar og þéttir húð
Eykur teygjanleika húðar
Bætir svefn
Formar líkamann
Eykur lífsþrótt
Yngir húðina svo um munar
Það sem einnig kemur skýrt fram í vedísku textunum um abhyanga er hin mikla áhersla á að við fáum tækifæri til að frásoga lækningajurtirnar í gegnum okkar stærsta líffæri, húðina. Um leið leið nær húðin að hreinsa út óhreinindi. Kannski ekki ólíkt því að láta smyrja bílinn reglulega, nema hér er mælt með daglegri umhirðu.





