
Hátíðarkakó og hjartaopnandi frá Perú - 450 gr
100% hreint cacaó ræktað í Perú. Notað fyrir hreint hátíðarkakó eða blandað í aðra dýrindis drykki. Gerðu þitt eigið súkkulaði, notaðu í bakstur eða aðra matreiðslu. Þessi kakóblokk er heil. Milt, mjúkt og gott bragð…
FERLIÐ
Kakóið vex, er uppskorið og unnið á vistvænan hátt eftir hefðum og venjum. Eftir að kakófræbelgirnir hafa verið uppskornir eru baunirnar gerjaðar. Síðan eru þær sólþurrkaðar og léttristaðar. Þar á eftir er hýðið tekið af baununum og þær steinmalaðar í deig. Engu er bætt við og ekkert fjarlægt sem er mjög mikilvægt þar sem það þýðir að náttúruleg góð fita er enn til staðar í kakóinu og það hjálpar líkamanum við upptöku þeirra fjölmörgu næringarefna sem finnast í kakóinu.
HJARTAOPNANDI
Kakó hefur verið notað í seremóníur í margar aldir. Það er ekki aðeins þekkt fyrir að vera hjartaopnandi heldur einnig opna fyrir blóðflæði um allan líkamann. Kakóið getur hjálpað til við að finna meiri kærleika til sjálfs sín og tengingu við tilfinningar og hjartað og það sem þar býr.
Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. Sendum samdægurs alla virka daga fyrir kl. 14. 14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum.
Handvalið af systrum
Hver vara valin eftir sömu reglu og systurnar sjálfar myndu velja.
Lífrænt & rekjanlegt
Rekjanleg innihaldsefni frá næringarríkustu svæðum heims.
Engin fylliefni
Bara virk innihaldsefni í raunverulegum skammti — engin málamiðlun.
Ráðgjöf fylgir
Þekking og ráðgjöf systranna fylgir hverri pöntun.









