Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Moya matcha. Premium. Rollsinn og lífrænt vottað af Túni. 100 gr

Moya matcha. Premium. Rollsinn og lífrænt vottað af Túni. 100 gr

Þetta er Rollsinn! Premium matcha í hæsta gæðaflokki með umami bragði og ríku og mjúku sætubragði. Te sem fékk hæstu einkunn í smakkprófi hjá okkur. Lífrænt vottað af Túni. Upprunaland: Japan Bragð: Umami, auðugt og…

13.500 kr.
Til á lager
1
Örugg greiðsla — upplýsingar þínar eru verndaðar

Hvernig:

Hefðbundin leið til að undirbúa matcha kemur frá japönsku teathöfninni. Það felur í sér að nota matcha skál, bambus pískara –chasen- og bambus skeið -chashaku. Settu 2 chashaku skeiðar af matcha (1,5 g) í matcha skál og helltu 100 ml af heitu vatni yfir (ekki heitara en 80 °C). Þeytið matcha kröftuglega með pískaranum, frá úlnliðnum í m-laga, ekki hringlaga, hreyfingu. Eftir um það bil 20 sekúndur ætti að hafa myndast fullkomin jade-græn froða. Þegar búið er að þeyta teið getur þú bætt við meira vatni til að gera það daufara.

Það er álíka auðvelt að blanda matcha saman með litlum hand mjólkuflóara. Bætið flatri teskeið af matcha (1,5 g) í bolla eða glas og hellið 100 ml af heitu vatni í glasið. Blandið vel saman og bætið meira vatni við ef vill. 1 teskeið gefur þér venjulega 200-250ml af matcha drykk. Rétt eins og með kaffi finnst sumum gott að drekka sterkan matcha espresso, aðrir vilja frekar bæta við vatni. Þú getur líka blandað matcha saman við safa eða mjólk.

Moya matcha Premium tilheyrir hæsta gæðaflokki og er úr yngstu og fínustu laufum úr fyrstu uppskeru. Moya premium er notað í hefðbundna teathöfn. Það er sætt og bragðmikið með rjómalagaðri áferð og einkennist ef líflegum og fallegum jadegrænum lit. Moya Matcha Premium fæst úr 1. uppskeru af teplöntum sem eru sérstaklega skyggðar fyrir beinu sólarljósi. Með skyggingunni næst fram hærri og meiri blaðgræna og aukins L-Theanin róandi innihalds. Aðeins fínustu og viðkvæmustu ferskum laufum er safnað, þau þurrkuð og möluð í duft.

Um Moya matcha

Moya Matcha Premium er ræktað í Uji-héraði í Kyoto, en það er þekkt fyrir ræktun á hágæða grænu tei í yfir 800 ár. Uji-svæðið er frægt fyrir frjósaman jarðveg og hreint vatn. Grænu teplönturnar þar búa við kjöraðstæður til vaxtar þökk sé hæðum sem veita gott sólarljós og algengs þokumisturs sem verja viðkvæm blöð fyrir frosti og mikilli úrkomu. Moya Matcha er vandlega ræktað og uppskorið á litlum lífrænum teökrum í eigu hverrar fjölskyldu. Það er síðan unnið á staðnum í Japan og sent í litlum lotum til að tryggja hámarks ferskleika fyrir allar tegundirnar okkar. Þetta hjálpar til við að varðveita alla eiginleika teblaðsins og viðhalda miklu magni steinefna og andoxunarefna.

Moya Matcha er með lífræna laufblaðið sem er vottunarmerki ESB og hefur einnig fengið Tún vottun.

Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. Sendum samdægurs alla virka daga fyrir kl. 14. 14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum.

Handvalið af systrum

Hver vara valin eftir sömu reglu og systurnar sjálfar myndu velja.

Lífrænt & rekjanlegt

Rekjanleg innihaldsefni frá næringarríkustu svæðum heims.

Engin fylliefni

Bara virk innihaldsefni í raunverulegum skammti — engin málamiðlun.

Ráðgjöf fylgir

Þekking og ráðgjöf systranna fylgir hverri pöntun.

Moya matcha. Premium. Rollsinn og lífrænt vottað af Túni. 100 gr
13.500 kr.

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing