Flestum þykir túnfífill fagur og bera vott um að sumarið sé á næsta leyti. Túnfífill er alls engin plága því lækningarmáttur hans er óumdeildur.
Túnfífill er semsé öflug jurt án aukaverkanna, sem er gott að taka inn með góðum mjólkuþistli. Auk þess að vera frábær uppspretta margra mikilvægra vítamína og steinefna, eins og járns, fosfórs og sinks, er hann hvað mest dáður vegna þess að hann ýtir við gallvökvanum og styrkir þannig samband lifrar og gallblöðru, sem er gott fyrir heilsufar okkar í heild. Þekkt er að túnfífill hreinsar einnig hormóna sem setjast að í lifur og er að auki mjög vatnslosandi.
Króklappa/rót: Í Auyrvedískum fræðum er talað um króklöppu sem drottingu allra blóðhreinsandi jurta. Hún ýtir einnig við gallvökvanum og er sögð endurnýja skemmdar frumur. Hún er líka bólgueyðandi og beisk og þann bragðþátt vantar mjög uppá á Vesturlöndum fyrir jafnvægi líkamans.
Frá Viridian fæst góð blanda af túnfífli og króklöppu í 350 mg hylkjum, án allra aukaefna. Mælt er með 1 til 3 hylkjum á dag en gott er að byrja á 1 hylki en færa sig svo smám saman upp í 3 til þess að hreinsa bæði á breiddina og dýptina.
Blandan frá Viridian tekur aunpokanna burt.
„Túnfífilsrótin er notuð við öllum lifrar- og gallblöðrusjúkdómum, t.d. gulu, og einnig við meltingartregðu, svefnleysi og þunglyndi. Rótin er mjög góð fyrir fólk sem þarf að styrkja sig eftir langvarandi lyfjatöku eða áfengisneyslu. Rótin er einnig góð við bjúg sem orsakast af vanvirkri lifur.“ Heimild: Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir grasalæknir um notkun túnfífils í bókinni Íslenskar lækningajurtir.




