Að halda sér í formi og heilbrigðum fellur aldrei úr gildi en hvernig við náum heilbrigði og vellíðan er alltaf að þróast. Rétt eins og aðrar atvinnugreinar er þróun í heilsu og vellíðan stöðug. Þegar tækninni fleytir fram, þekkingin eykst og nýjar aðferðir eru kynntar breytist það sem verður vinsælt. En líka þegar við enduruppgötvum fornar hefðir sem virka um leið og skiljum við hvers vegna þær virka.
Nú eru sérfræðingar á sviði heilsu- og mannræktar hver af öðrum að spá í strauma og stefnur fyrir árið 2023.
Áður en lengra er haldið er áhugavert að skoða þessa strauma með tilliti til kynslóðanna. Hvað vill hver kynslóð fá út úr sinni heilsurækt? Nýlegar erlendar kannanir sýna nefnilega að hugmyndir kynslóðanna um góða heilsu eru ekki endilega nákvæmlega þær sömu. Til dæmis segir kynslóðin sem nú er á aldrinum 18 til 24 ára aðalástæðuna fyrir sinni heilsurækt vera andlegs eðlis. Þau vilja fyrst og fremst halda geðheilsunni góðri. Þeir sem eru 60 ára og eldri horfa gjarnan á hjartalínuritið. Sú kynslóð sem er í miðið einblínir meira á efnið. Þar snýst flest um að styrkja kroppinn, spá í hrukkur og líta sem best út. Þetta er auðvitað ekki klippt og skorið því fólk á öllum aldri spáir í andann og aðrir meira í efnið. Þetta gefur þó ákveðnar vísbendingar um ólíkar hugmyndir kynslóðana.
En óhætt er að segja að heilsu- og mannræktarstraumar ársins 2023 verði alls konar því þeir spanna allt frá andlitsjóga að batakokteilum og frá reiki jóga og efnaskiptabyltingu til djúprar ástar og tengingar við náttúruna.
Mikill áhugi á dýpri tengingu/lækningu

Byrjum á reiki, því það vill svo til að áhugi fólks sem vill ná góðri heilsu og vellíðun beinist þangað. En hvað er reiki? Það vita nú þegar ansi margir. Það er ákveðin tegund af orkutækni sem gefur fólki færi á að slaka á. Margir vitna um að reiki dragi úr streitu og kvíða. Allt með mildri snertingu. Þetta getur verið frábær leið til að létta á langvarandi verkjum og spennu, stuðla að sjálfsheilun og til að örva ónæmiskerfi líkamans. Þær sem eru fróðastar um reiki segja það leiða okkur inn í meðfætt jafnvægi og þann heilunarmátt sem við öll búum yfir. Þegar við lifum þessa visku erum við það sem kallað er í vakandi vitund og um leið afslappaðri. Þá á sjálfsheilunin sér stað.
Reiki og jóga – saman? Já, takk!
Reiki rennur inn í jóga! Jóga- og hugleiðsluaðferðir eru síbreytilegar. Undanfarið hafa yin jóga, jóga nidra og tónheilun, allt þetta mjúka, fest sig í sessi (ekkert kraftaverk hér) og að sjálfsögðu hefur alls konar hugleiðsla náð mikilli útbreiðslu. Margir kjósa að gera meira af endurnærandi æfingum sem eru hægar, meðvitaðar og andlegar. Þetta er málið um þessar mundir. Þá er bara spurningin; hvers vegna ekki að sameina reiki og jóga? Praktísk reiki heilun og jóga gæti verið verið ávísun á eitthvað nýtt og spennandi.
Andlitsjóga







