Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Vörumerki

Guðdómlegt heitt súkkulaði með chaga – UPPSKRIFT

Chaga sveppirnir frá Erbology koma lífrænir beint úr iðrum Finnlands.

Chaga er stundum kallaður konungur sveppanna. Hann styður við ónæmiskerfið, heilsu húðarinnar og almenna vellíðan.

Næringarefni: 7% af beta-glúkani, melaníni, öflugum sterólum og triterpenum, svo sem inotodioli, lanosteroli og trametenolic sýru, sem hjálpa líkamanum að berjast gegn sýklum.

Bragð: Jarðarbragð, fremur beiskt. Passar rosa vel í kakóbolla.

Engin viðbætt sterkja, fylliefni eða rotvarnarefni

Hér kemur æðislegur kakóbolli með chaga sem þið ættið að prófa. Þessi uppskrift er fyrir 2.

INNIHALD.

  • 400ml kókosmjólk

  • 50g dökkt súkkulaði, saxað

  • 1 ½ tsp Erbology Organic Wild Chaga Powder

  • 1 tsk freskur malaðaður pipar

  • ¼ tsk malaður negull

  • 1 msk kókossykur

  • 2 tsk vanillu sykur eða vanilla á hnífsoddi fyrir þá sem vilja minni sætu

  • Ögn af salti

Aðferð: Blandið öllu hráefninu saman við kókosmjóllkina. Látið malla í 1-2 mínútur við vægan hita, þar til súkkulaðið er bráðið og blandan orðin rjómalöguð. Látið standa í í 2 mínútur í viðbót. Sigtið síðan og hellið í glös. Njóttu!

https://systrasamlagid.is/vefverslun/omotstaedilegir-drykkir/chaga-lifraenn-og-villtur-fyrir-onaemiskerfid-og-gegn-streitu/
Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing