Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Vörumerki

HYDRÉA LONDON – NÝTT VÖRUMERKI Í SYSTRASAMLAGINU

Hydréa London er leiðandi í baðdekri og býður allt það fínasta og besta sem húðin þarfnast.

Þetta er línan sem margar af vandaðri heilsulindum heims kjósa að skipta við.

Hydréa London er fremst í hönnun náttúrlegra og framúrskarandi vandaðra húðbursta og annarra húðdekurvara, auk þess sem náttúrlegir svampar eru stór hluti af þessari fallegu baðdekurlínu.

Óviðjafnanleg gæði og mikið úrval, ásamt djúpri umhverfisvitund og ábyrgum innkaupum hefur skapað Hydréa London einstaka stöðu á baðdekur markaðnum.

Í samvinnu við The Natural Sea Sponge Company, sem í raun bjó til Hydréa London á 10 áratugnum, hefur tekist að hanna framúrskarandi góða og fjölbreytta spa / húðumhirðulínu með sérstakri ástríðu fyrir smáatriðum til að tryggja hámarks árangur.

Hér skipta nefnilega smáatriðin öllu máli og vöruþróun er hvergi sambærileg og hjá Hydréa London.

Línan spannar allt frá mismunandi stórum og hörðum eða mjúkum húðburstum til fíngerðra augnsvampa og frá nuddhönskum til fótaþjala úr viði og vikri.

Hárin í húðburstunum eru náttúrleg, svamparnir úr sjálfbærri uppsprettu, viðurinn FSC vottaður. Hanskarnir oft úr bambus eða öðrum náttúrlegum efnum sem öll eru umhverfisvæn. Enda löngu tímabært að hanna aðeins það besta fyrir stærsta líffæri mannsins, húðina.

Hydréa London hlaut á þessu ári “Good Brand Award” fyrir umhverfisvitund og sjálfbærni af hinu virta tímariti Sublime. Sjá hér BAÐDEKURLÍNUNA á vefsíðu okkar.

Meðal þeirra sem njóta þess að bjóða upp Hydréa London eru Planet Organic, Liberty og Harrods og mörg af helstu heilsuhótelum hótelum heims.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing