Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Vörumerki

NAILBERRY – FYRIR HEILSUNA OG HÁTÍSKUNA

L’Oxygéné línan frá nýju samstarfsfyrirtæki Systrasamlagsins, Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk…

 

L’Oxygéné línan, frá frábæru samstarfsfyrirtæki Systrasamlagsins, Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk. Þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru eiturefnalaus, vegan, næra, anda, endast og þykja framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist um á dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free” og það má næstum borða þau en við mælum ekki með því. Og við ítrekum, þau eru vegan. Nailberry naglalökkin hafa fengist í Systrasamlaginu síðan haustið 2016, en þar birtust þau Íslendingum fyrst.

Á N  12   S K A Ð L E G U S T U   E F N A N N A:

L’Oxygéné eru án ALLRA, eða 12 skaðlegustu efnanna sem almennt er að finna í naglalökkum. Þau eru: Formaldehýð Túlín Kemísk kamfóra DPB (skaðleg þalöt) Formaldehýð kvoðu (resin), xylene, ethyl tosylamide, triphenyl phosphate, alkóhóls, parabena, dýraafurða & glútens (sem er ekki sjálfgefið).

Nailberry L’Oxyéne henta því ekki bara flestum heldur öllum. Þar með talið óléttum konum, börnum og líka þorra þeirra sem þjást af allskyns ofnæmum. Þau sameina í senn fegurð og hreinleika og það ekkert gefið eftir þegar kemur að heilsusamlegum snyrtivörum. Neglurnar koma vel nærðar undan Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa unnið til virtra verðlauna sem eru :

V E R Ð L A U N  &  V I Ð U R K E N N I N G A R: Besta alþjóðlega bjútí heilsuvaran (Natural Health International Beauty Award 2016) og aftur komið í úrslit fyrir 2017.

Best hannaða fegrunavaran (Best Beauty Stylist).

H  Á T Í S K A N  &  J Ó G A  Nailberry naglalökkin eru hugarsmíð Soniu Hully sem hóf að þróa Nailberry fyrir fimm árum. Hún ákvað strax í upphafi að gefa engan afslátt, hvorki af heilsunni né hátískunni. Í dag hafa Nailberry naglalökkin öðlast sess sem hátískuvara sem notast er við á tískuvikum í stórborgum. En þú getur líka keypt þau á skemmtilegustu jógastöðunum t.d. í London. Það er fallegt að bera naglalakk sem andar og nærir í jóga og líka við önnur hátíðleg tækifæri.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing