Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
UppseltFULLBÓKAÐ. Mikilvægasta hausthreinsun ársins. Einstök einstaklingsmiðuð 14 daga Ayurvedahreinsun með Heiðu Björk í október

FULLBÓKAÐ. Mikilvægasta hausthreinsun ársins. Einstök einstaklingsmiðuð 14 daga Ayurvedahreinsun með Heiðu Björk í október

Einstök einstaklingsmiðuð 14 daga Ayurveda HAUSThreinsun með Heiðu Björk. Ein sú mikilvægasta á árinu. Jurtir sniðnar að hverjum og einum innifaldar. Kennari: Heiða Björk Sturludóttir ayurvedasérfræðingur. HVENÆR…

35.000 kr.
Ekki til á lager
1
Örugg greiðsla — upplýsingar þínar eru verndaðar

Námskeið og hreinsunin í Systrasamlaginu 2024 verður einstaklega áhugaverð í október enda farið dýpra í Ayurvedafræðin en nokkru sinni og hreinsunin aðlöguð að þörfum hvers og eins. Fylgt er mjög skýru, aðgengilegu, notalegu og persónulegu plani frá degi til dags. En áður en lagt er af stað mun Heiða  Björk vera í sambandi við hvern þátttakanda, því mismunandi ástand líkama og hugar hjá hverjum og einum krefst mismundi jurta sem notaðar eru við hreinsunina.

Ayurveda hausthreinsunin er hressandi leið til að hefja alveg nýtt og orkuríkt tímabil enda má segja að þessi fornu fræði búi yfir dýpstu og bestu hreinsunarþekkingu sem völ er á. Hreinsun meltingarkerfisins hefur reynst mörgum vel til að vinna á liðverkjum, höfuðverk, svefnvandamálum, húðvandamálum, að sjálfsögðu líka meltingarvandamálum og til að stilla af blóðsykurinn.

Meltingarfærum er gefinn friður til að endurnýja og hreinsa og nokkurnveginn núllstilla kerfið til að það fari að vinna rétt. Hér er um að ræða dýpri hreinsun en gengur og gerist. Með því kemur jafnan mikil og góð orka. Þessu er kannski hægt að líka við það þegar tölvan er farin að hægja á sér og frjósa. Þá lokum við öllum gluggum og endurræsum.

Námskeiðið fer semsé fram tvo daga í hinu notalega Systrasamlagi, laugardginn 6. október frá 11:00-14:00 og síðan hittumst við aftur síðdegis þriðjudaginn 15. október frá 17:30 – 20:00. Í millitíðinni verður klukkustundar ZOOM fundur, laugardaginn 12. okt frá 10:00 – 11:00.
Boðið verður upp á málsverð í anda Ayurveda 6. og 12. október.

Í framhaldi af fyrsta fundi höldum við hópinn á facebook á meðan hreinsun stendur. Jafnframt getið þið varpað spurningum á Heiðu Björk í tölvupósti meðan á hreinsun stendur.

Gaman er að segja frá því að á síðasta ári gaf Heiða Björk út hina stórmerku bók Ayurveda listin að halda jafnvægi í óstöðugri veröld. Þá bók verður hægt að kaupa með 20% afslætti í Systrasamlaginu fyrir þáttakendur.

Ps: Til að létta ykkur lífið verður hægt að versla kitshari og súpur ýmist fyrir 3 eða 6 daga í senn á betra verði í Systrasamlaginu í tilefni hreinsunar. Það getur létt mörgum lífið.  Frekari upplýsingar um það verða veittar fyrsta fundi.

Takmörkuð pláss í boði!!

Frekari upplýsingar um Heiðu Björk má finna hér: https://astogfridur.is/ 
 

Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. Sendum samdægurs alla virka daga fyrir kl. 14. 14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum.

Handvalið af systrum

Hver vara valin eftir sömu reglu og systurnar sjálfar myndu velja.

Lífrænt & rekjanlegt

Rekjanleg innihaldsefni frá næringarríkustu svæðum heims.

Engin fylliefni

Bara virk innihaldsefni í raunverulegum skammti — engin málamiðlun.

Ráðgjöf fylgir

Þekking og ráðgjöf systranna fylgir hverri pöntun.

FULLBÓKAÐ. Mikilvægasta hausthreinsun ársins. Einstök einstaklingsmiðuð 14 daga Ayurvedahreinsun með Heiðu Björk í október
35.000 kr.

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing