Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
UppseltFULLBÓKAÐ. Mikilvægasta VOR hreinsun ársins. Einstök einstaklingsmiðuð 14 daga Ayurvedahreinsun með Heiðu Björk hefst 15. mars 2025

FULLBÓKAÐ. Mikilvægasta VOR hreinsun ársins. Einstök einstaklingsmiðuð 14 daga Ayurvedahreinsun með Heiðu Björk hefst 15. mars 2025

Einstök einstaklingsmiðuð og vinsæl 14 daga Ayurveda VORhreinsun með Heiðu Björk. Ein sú mikilvægasta á árinu. Jurtir sniðnar að hverjum og einum innifaldar. Kennari: Heiða Björk Sturludóttir ayurvedasérfræðingur…

36.000 kr.
Ekki til á lager
1
Örugg greiðsla — upplýsingar þínar eru verndaðar

Námskeið og hreinsunin í Systrasamlaginu 2025 verður einstaklega áhugaverð í mars 2025 enda farið dýpra í Ayurvedafræðin en nokkru sinni og hreinsunin aðlöguð að þörfum hvers og eins. Fylgt er mjög skýru, aðgengilegu, notalegu og persónulegu plani frá degi til dags. En áður en lagt er af stað mun Heiða  Björk vera í sambandi við hvern þátttakanda, því mismunandi ástand líkama og hugar hjá hverjum og einum krefst mismundi jurta sem notaðar eru við hreinsunina.

Ayurveda hausthreinsunin er hressandi leið til að hefja alveg nýtt og orkuríkt tímabil enda má segja að þessi fornu fræði búi yfir dýpstu og bestu hreinsunarþekkingu sem völ er á. Hreinsun meltingarkerfisins hefur reynst mörgum vel til að vinna á liðverkjum, höfuðverk, svefnvandamálum, húðvandamálum, að sjálfsögðu líka meltingarvandamálum og til að stilla af blóðsykurinn.

Meltingarfærum er gefinn friður til að endurnýja og hreinsa og nokkurnveginn núllstilla kerfið til að það fari að vinna rétt. Hér er um að ræða dýpri hreinsun en gengur og gerist. Með því kemur jafnan mikil og góð orka. Þessu er kannski hægt að líka við það þegar tölvan er farin að hægja á sér og frjósa. Þá lokum við öllum gluggum og endurræsum.

Námskeiðið fer semsé fram tvo daga í hinu notalega Systrasamlagi, laugardginn 15. mars frá 11:00-14:00 og síðan hittumst við aftur síðdegis fimmtudaginn 27. mars frá 17:30 – 20:00. Í millitíðinni verður klukkustundar ZOOM fundur, sunnudaginn 23ja. mars frá 11:00 – 13:00.
Boðið verður upp á málsverði í anda Ayurveda 15. og 23. mars.

Í framhaldi af fyrsta fundi höldum við hópinn á facebook á meðan hreinsun stendur. Jafnframt getið þið varpað spurningum á Heiðu Björk í tölvupósti meðan á hreinsun stendur.

Gaman er að segja frá því að fyrir nokkru gaf Heiða Björk út hina stórmerku bók Ayurveda listin að halda jafnvægi í óstöðugri veröld. Þá bók verður hægt að kaupa með 20% afslætti í Systrasamlaginu fyrir þáttakendur.

Ps: Til að létta ykkur lífið verður hægt að versla kitshari og súpur ýmist fyrir 3 eða 6 daga í senn á betra verði í Systrasamlaginu í tilefni hreinsunarinnar. Það getur létt mörgum lífið.  Frekari upplýsingar um það verða veittar fyrsta fundi.

Takmörkuð pláss í boði!!

Frekari upplýsingar um Heiðu Björk má finna hér: https://astogfridur.is/ 
 

Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. Sendum samdægurs alla virka daga fyrir kl. 14. 14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum.

Handvalið af systrum

Hver vara valin eftir sömu reglu og systurnar sjálfar myndu velja.

Lífrænt & rekjanlegt

Rekjanleg innihaldsefni frá næringarríkustu svæðum heims.

Engin fylliefni

Bara virk innihaldsefni í raunverulegum skammti — engin málamiðlun.

Ráðgjöf fylgir

Þekking og ráðgjöf systranna fylgir hverri pöntun.

FULLBÓKAÐ. Mikilvægasta VOR hreinsun ársins. Einstök einstaklingsmiðuð 14 daga Ayurvedahreinsun með Heiðu Björk hefst 15. mars 2025
36.000 kr.

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing