Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr.
30 daga skilaréttur á öllum vörum.
Handvalin íslensk náttúruvörur, valin af systrunum.
Uncategorized

TOPP 8 MÖNTRU / HUGLEIÐSLUR MEÐ THELMU BJÖRK

Thelma Björk jógakennari og hönnuður með meiru hefur staðið hugleiðsluvaktina í Systrasamlaginu í nærri fjögur ár sem er alveg magnað. Á tímum Covid voru aðrar leiðir farnar og í samvinnu við Thelmu ákváðum við að senda út margar möntru / hugleiðslur í beinu streymi. Þær má nú má finna á facebókarsíðu Systrasamlagsins en líka á instagram reikningi Thelmu @andadumedthelmu

Það var úr vöndu að velja en hér eru nokkrar alveg frábærar og mikilvægar sem við þurfum kannski mörg á að halda núna og ekki síst þeir sem þurfa að sæta sóttkví.

Þær 8 sem við mælum sérstaklega með eru hver annarri fegurri og magnaðri. Stundum er gott að gera þá sömu dag eftir dag en það má gera hverja á eftir annarri.

Njótið þessarar einstöku gulllmola úr smiðju Thelmu Bjarkar. Með þvi að smella á nöfn mantranna/hugleiðslanna má hlýða á þær í heild sinni með inngangi og lokaorðum. Og helling af vísdómi.

1. Hér er er kyrjuð hin undurfagra mantra Sat Narayan Wahe Guru Hari Narayan Sat Nam fyrir innri frið, hamingju og farsæld.

2. Saa Taa Naa Maa samstillir vinstra og hægra heilahvel. Þessi mantra var kyrjuð í nóvember 2020. Hún þykir er afar öflug og sú sem mest hefur verið rannsökuð á Vesturlöndum. Þessi hugleiðsla er þekkt undir heitinu Kirtan krya og er mikilvæg hinu kvenlega sem býr innra með okkur öllum. Í jógavísindunum kemur fram að Kirtan krya hjálpar við að heila gömul áföll, örvar heilaköngul og samstillir vinstra og hægra heilahvel. Hún á því sjaldan betur við en nú.

3. Aap Sahai Hoa Sachay Daa Sachaa Doa, Har Har Har Hér er mantra sem er sögð koma okkur í gegnum allar hindranir.

4. Har har wahe guru – hjarta mantra fyrir gott jafnvægi Hér leiðir Thelma Björk okkur í gegnum hina undurfallegu hjartamöntru har har wahe guru. Njótið.

5. Sat Kartar er önnur hjartamantra þar sem lífsorkan fær sérstakt vægi. Hér er aðeins um möntruna á ensku: Sat (meaning essence of truth, or being) first identifies in the mantra the soul’s True Sound. Kartar (meaning ‘doer’) combines with Sat to form a phrase meaning ‘One Doer,’ ‘True Manifester,’ or ‘Deliverer of the Truth.’ When these primal sounds are repeated over time, we are in effect opening, expanding, and directing the energetic flow of the pranic center of the heart.

6. Sa Re Sa Sa Þessi fallega mantra er sögð hreinsa orkustöðvarnar og gefa extra útgeislun og kraft.

7. Pavan Pavan Er mikil orkumantra og sögð ýta undir hugrekki og sköpunarkraft.

8. Gobinda Hari mantran Kannski er allt eins og það á að vera? Látum okkur langa í það sem við höfum, segir Thelma Björk í upphafi hugleiðslunnar. Gobinda Hari er góður vinur á erfiðum tímum. Hún hjálpar fólki að endurstilla orkuna og bægja burtu því neikvæða.

Meira að lesa

Tengdir pistlar

Skoða allar

Vafrakökur

Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.

Persónuverndaryfirlýsing