
Mikilvægasta VOR hreinsunin. Einstök einstaklingsmiðuð 14 daga Ayurvedahreinsun með Heiðu Björk hefst 17. mars 2026
Einstök einstaklingsmiðuð og vinsæl 14 daga Ayurveda VOR hreinsun með Heiðu Björk. Ein sú allra mikilvægasta á árinu. Jurtir sniðnar að hverjum og einum innifaldar. Kennari: Heiða Björk Sturludóttir…
Námskeið og hreinsun í Systrasamlaginu 2026 sem verður einstaklega áhugaverð í mars 2026 enda farið djúpt í Ayurvedafræðin og hreinsunin aðlöguð að þörfum hvers og eins. Fylgt er mjög skýru, aðgengilegu, notalegu og persónulegu plani frá degi til dags. En áður en lagt er af stað mun Heiða Björk vera í sambandi við hvern þátttakanda (í gegnum tölvupóstssamskipti), því mismunandi ástand líkama og hugar hjá hverjum og einum krefst mismundi jurta sem notaðar eru við hreinsunina.
Ayurveda hausthreinsunin er hressandi leið til að hefja alveg nýtt og orkuríkt tímabil enda má segja að þessi fornu fræði búi yfir dýpstu og bestu hreinsunarþekkingu sem völ er á. Hreinsun meltingarkerfisins hefur reynst mörgum vel til að vinna á liðverkjum, höfuðverk, svefnvandamálum, húðvandamálum, að sjálfsögðu líka meltingarvandamálum og til að stilla af blóðsykurinn.
Meltingarfærum er gefinn friður til að endurnýja og hreinsa og nokkurnveginn núllstilla kerfið til að það fari að vinna rétt. Hér er um að ræða dýpri hreinsun en gengur og gerist. Með því kemur jafnan mikil og góð orka. Þessu er kannski hægt að líka við það þegar tölvan er farin að hægja á sér og frjósa. Þá lokum við öllum gluggum og endurræsum.
Námskeiðið fer semsé fram tvo daga í hinu notalega Systrasamlagi, ÞRIÐJUDAGINN 17. mars frá 18:00-20:30 og síðan hittumst við aftur LAUGARDAGINN 28. mars frá 11:00 – 13:30. Í millitíðinni verður klukkustundar ZOOM fundur, SUNNUDAGINN 22. MARS frá 10:00-11:00
Boðið verður upp á málsverði í anda Ayurveda 17. MARS og 28. MARS.
Í framhaldi af fyrsta fundi höldum við hópinn á facebook á meðan hreinsun stendur. Jafnframt getið þið varpað spurningum á Heiðu Björk í tölvupósti meðan á hreinsun stendur.
Gaman er að segja frá því að fyrir nokkru gaf Heiða Björk út hina stórgóðu bók Ayurveda listin að halda jafnvægi í óstöðugri veröld. Þá bók verður hægt að kaupa með 20% afslætti í Systrasamlaginu fyrir þátttakendur.
Ps: Til að létta ykkur lífið verður hægt að versla kitshari og súpur ýmist fyrir 3 eða 6 daga í senn á betra verði í Systrasamlaginu í tilefni hreinsunarinnar. Það getur létt mörgum lífið. Frekari upplýsingar um það verða veittar fyrsta fundi.
Takmörkuð pláss í boði!!
Frekari upplýsingar um Heiðu Björk má finna hér: https://astogfridur.is/
Frí sending á pöntunum yfir 9.900 kr. Sendum samdægurs alla virka daga fyrir kl. 14. 14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum.
Handvalið af systrum
Hver vara valin eftir sömu reglu og systurnar sjálfar myndu velja.
Lífrænt & rekjanlegt
Rekjanleg innihaldsefni frá næringarríkustu svæðum heims.
Engin fylliefni
Bara virk innihaldsefni í raunverulegum skammti — engin málamiðlun.
Ráðgjöf fylgir
Þekking og ráðgjöf systranna fylgir hverri pöntun.






